Árið 1996 afhjúpaði forsætisráðherra forsætisráðherra Lettlands minnismerki á horni Túngötu og Garðarstrætis, stærðarinnar granítskúlptúr unninn af lettneska myndhöggvaranum Paul Jaunzens. Með skúlptrúrnum vildu Lettar koma á framfæri þakklæti við Íslendinga fyrir liðsinni við endurheimt frelsis frá áratugalangri kúgun Sovétríkjanna á eystrasaltsríkjunum. ([Umfjöllun um athöfnina í Morgunblaðinu frá 1996.](https://i.imgur.com/9yiBjd3.png))

Í gær [ákváð borgarstjórn Reykjavíkur](https://reykjavik.is/frettir/torg-kennt-vid-kaenugardkyiv) svo að þessi gjöf frá lettnesku þjóðinni myndi héðan í frá heita Kænugarður/Kýiv-torg. Ég veit ekki alveg hvað manni á að finnast um þetta? Auðvitað er frábært að Reykjavík taki loks af skarið og kenni eitthvað við Kænugarð eins og flestar borgir í Evrópu hafa gert.

En gátu þau ekki valið eitthvað annað en það sem er bókstaflega annar minnisvarði um kúgun Rússa á nágrönnum sínum, sem er í þokkabót gjöf frá þjóðinni sjálfri? Mér finnst þetta eiginlega bara vera vanvirðing við þessa vinaþjóð okkar.

6 comments
  1. Hingað til hefur þetta torg ekki heitið neitt, það er ekki verið að endurnefna gjöfina (torgið var ekki gjöf, heldur höggmyndaverkið sem stendur á torginu), heldur nefna torgið sem höggmyndin stendur á.

    Það er jafnvel hægt að segja að það sé mjög viðeigandi að nefna torgið sem frelsisminnismerkið stendur á eftir annarri þjóð sem er að berjast fyrir frelsi sínu.

  2. Það er ekki verið að breyta nafninu á skúlptúrnum. Það er verið að breyta nafninu á torginu sem hann er á. Torgið hefur aldrei heitið eftir skúlptúrnum.

  3. Það er enginn að endurnefna höggmyndina. Hún fær að standa óáreitt. Torgið sem höggmyndin stendur á er verið að endurnefna, og þykir mér það bara ríma vel saman við myndina: höggmyndin er minnisvarði um kúgun Rússa, og stendur sá varði nú á torgi sem er nefnt til stuðnings við aðra þjóð sem á undir höggi að sækja frá Rússum.

  4. Svona fyrir utan það að þetta er allt byggt á sandi hjá þér þá held ég að Lettland tæki því bara fagnandi (þó þeim væri að sjálfsögðu svo til slétt sama) ef við ristuðum ‘Slava Ukraini!’ í þessa steina og breyttum nafninu á höggmyndinni í ‘Stuðningur við Úkraínu’. Svona í ljósi þess að Kænugarður er í ástandinu sem hann er í og Lettland stendur með Úkraínu jafn þétt og þeir gera.. út í hött kvart og kvein.

  5. Það er ekki verið að breyta nafninu á gjöfinni, bara torginu, sem hefur ekki hingað til haft nafn.

    Mér finnst þetta almennt bara ágætt samspil, Eystrasaltsríkin og Úkraína eiga það sameiginlegt að vera fórnarlömb yfirgangs Rússa, og þetta er við hliðina á Rússneska sendiráðinu.

    Mér finnst ágætt að halda þessu til haga saman.

Leave a Reply