Þörf áminning

7 comments
  1. Ef ég er að keyra hraðar en öll umferðin, en er á vinstri akrein, hvað á ég þá að gera?

    ^(Er að spyrja fyrir vin.)

  2. Ég keyri mjög oft á vinstri og er oftast kannski 5km yfir hámarskhraða. Ef það er umferð á báðum akreinum og ég er ekki undir umferðarhraða/hámarkshraða þá er mér drull um á hvaða akrein ég er. Vídjóið tekur skýrt fram að þetta sé til að taka framúr hægfara umferð, en það vantar kannski að hún sé þá undir hámarkshraða. Fólk sem blikkar mig og er í rassgatinu í mér þegar ég er á 90 þar sem hámarkshraði er 80 má bara læra að anda og slaka…

  3. Góð áminning og einnig mætti sýna hvernig á að sameinast af aðrein, gífurlega margir sem sameinast aðalstraumnum þar sem hámarkshraði er 80 á 50-60km/klst og áður en að brotalínan byrjar (aðrein frá lindum að Reykjanesbraut im looking at you)

    Edit: mér finnst það í raun vera stærra vandamál, það er stórhættulegt og mjög pirrandi að hafa bara val um að vera á vinstri akrein á 85-90 og með teslu eða trukk blikkandi í rassgatinu eða vera á hægri akrein á 70-75

  4. Djöfull er miklabrautin hrein hérna. Frá 44 sek til 56 sek þá er ég að horfa á minningar. Þegar byggingar voru ekki troðnar svo þröngt, og þegar maður gat séð sjóndeildarhringinn eða þá að minnsta kosti litið upp án þess að einhver legó-plötu-arkitektúr skýli fyrir sólina.

    Ég veit, ég veit, old man yells at clouds, more at six.

  5. Ég þoli ekki fólk sem hangir á vinstri. Ef ég er á vinstri akrein og einhver kemur fyrir aftan mig, sama þótt ég væri 5km eða 50km yfir hámarkshraða, þá myndi ég fara yfir á hægri akrein til að hleypa honum á undan. Síðan get ég beygt aftur á vinstri ef umferðin á hægri akrein er hægari en ég, annars get ég einfaldlega haldið áfram á mínum hraða á hægri akrein. Þetta sér til þess að flæðið á umferðinni sé sem best og allir geta keyrt á sínum hraða á öruggan hátt.

    Ef þú ert lestarstjóri á vinstri akrein útaf því þér finnst “þinn hraði nógu hár fyrir alla fyrir aftan þig”, þá máttu endilega stíga berfættur á lego-kubb eða tvo.

  6. Ég vil líka tuða um fólk sem kann ekki á gatnamótabeygjur þar sem það keyrir inn á *sér akrein*, sem er til að hjálpa umferðarflæðinu…
    Og í staðinn þá stoppa þeir eins og fávitar í beyjunni, og bíða eftir því að umferðin dettur niður til að keyra beint inn á mið/vinstri akreinina.

    FOR FOKKS SAKE, ÞIÐ HAFIÐ HEILA FOLLING AKREIN FYRIR YKKUR TIL AÐ KEYRA INN Á, GEFA FOKKING STEFNULJÓS OG *SVO* SKIPTA UM AKREIN!

    Ekki vera þessi hálfviti í umferðinni sem stoppar allt og alla vegna þess að þú blindur á að lesa göturnar.
    (en ef svo er, taktu þá strætó, plís)

  7. Jafnvel enn þarfari áminning er notkun aðreina/fráreina sérstaklega í kringum slaufugatnamót, þetta er mjög áberandi að taka hægri beygju uppá Vesturlandsveg (í átt að Ártúnsbrekkunni) frá Sæbrautinni…þar stoppar fólk eins og umbiðskyldu væri að ræða sem kemur úr beygjunni á aðreinina og þeir sem ætla inná frárein stoppa líka til að hleypa þeim.

    Einfaldasta skipulagsbreyting sem myndi bæta ástandið gríðarlega væri að banna beygju sem þverar Reykjanesbrautina (við Sprengisand) uppí Fossvog svo fólk gæti keyrt þar óhindrað í gegn og komist áleiðis í Breiðholt, Kópavog, HFJ án þess að stífla allt til baka upp Sæbrautina og oft inná Miklubraut þegar langa aflíðandi beygjan fyllist.

Leave a Reply