Er ég einn um það að finnast þetta sturlað?

12 comments
  1. Hvað er sturlað? Að það sé tuðað yfir breyttum tímum eða það sé tuðað yfir því að það sé verið að tuða?

  2. Það eru vissulega kostir og gallar við farsímanotkun barna. En rannsóknir benda til þess að mikil notkun snjallsíma og þá sérstaklega samfélagsmiðlanotkun hafi slæmar afleiðingar fyrir geðheilbrigði barna. Ég þekki sjálfur til foreldra sem hafa troðið snjallsímum ofaní krakkana sína áður en þau fara að ganga, það þarf ekki doktorsgráðu í þroskasálfræði til þess að sjá að sú þróun er ekki jákvæð.

  3. Tíminn heldur áfram, það er engin ástæða að vera alltaf að halda í fortíðina og bera saman eitthvað sem er ómögulegt að bera saman. Ég myndi ekki vilja að börnin mín myndu leika sér með beinum af dýrum… Það eru fullt af leikföngum til í dag sem eru ætluð til þroskaeflingar og þau hafa aðgang af stórkoslega hugmyndaríku efni sem þau geta byggt á með sinni eigin hugmyndaríki Mér finnst það frábært. Þannig hefur okkar samfélag byggðst upp… við erum ekki að horfa með nostalgíu á handaför´ í hellum og bera saman við mónu lísu, hnussandi að hún geri ekkert fyrir ímyndunarafl okkar.

  4. Til hvers samt að tuða yfir því hvernig samfélagið er að breytast? Eins og einhver manneskja geti gert nokkurn skapaðan hlut til að sporna við því hvernig hegðun og samskipti fólks breytist með tímanum.

    Snjallsímakynslóðin mun örugglega tuða yfir því á ellisvifskipunum hvernig krakkar í dag eru að ‘jacka sig inn’ í ofurnetið og eru bara þar dögum saman með næringu í æð. Þegar þau voru yngri lögðu þau bara frá sér símann og þá var það búið.

    Ég pers´ónulega reyni bara að taka þessu eins og það kemur og sjá frekar jákvæðu hliðarnar frekar en að tönglast á því hvað þetta sé nú allt ömurlegt.

  5. 1. Krakkar fá snjalltæki alltof ung. Ég á tvo krakkalakka, einn nýfæddur og einn 3 ára. Hvorugir munu fá snjalltæki fyrr en um svona 12 ára. Ég er fullorðinn þúsaldari og ég á í erfiðleikum með að höndla dópamínfíknina sem kemur með samfélagsmiðlum og stöðugri athygli fr´´a skjánum, ég er ekki að fara að festa krakkana mína í þeim dansi áður en þau hafa haft tækifæri til að vaxa örlítið úr grasi.
    2. Fólk heldur alltaf að heimurinn sé að enda. Fyrsta kynslóðin sem fékk snjalltæki um 10 ára er orðin fullorðin. Eru þau eitthvað verri en kynslóðin sem kom á undan?
    3. Stóra vandamálið er að krakkarnir eru aðeins með aðgang að erlendu efni á þessum tækjum. Ef að okkur er alvara að bjarga þessu tungum´a´li þurfum við að finna einhverja unglinga og styrkja þá í að streyma frá tölvuleikjaspilun sinni á Íslensku, þýða smáforrit, viðmót og hvaðeina.

  6. Ah já. Hví er krakkin minn að leika sér í tækinu í staðinn fyrir dótin sem langafi minn notaði? Krakkar í dag hafa ekkert ímyndurnarafl.

  7. Ég man eftir þegar tölvuleikir komu fyrst . Það hoppuðu allir á það, enda allir hundleiðir á þúsund ára gömlum leikjum.

    Sé aðallega fólk sem hefur aldrei prófað tölvuleiki, væla yfir þessu.

    Og eyrun hjá mér bara lokast, enda skynsamlegast í stöðunni.

  8. Sko ég hefði orðað þetta öðruvísi til að opna umræðuna. Börn(og jafnvel fólk almennt) kann ekki að láta sér leiðast. Símarnir eru stanslaus örvun.

  9. Það var talað um þetta svipað þegar ég var krakki milli 1995 og 2004 að tölvuleikirnir drepa sköpunargetuna. Þetta er bara þróun. Krakkar í dag eru þó að skapa eitthvað þótt þau gömlu skilja það ekki. Ég var bara í tölvunni að eyða tíma.

Leave a Reply