
Væri ekki öllum sama hér á Íslandi? Við tökum við fleiri hælisleitendum m.v. höfðatölu en Svíþjóð en ég hef ekki orðið var við neitt vesen hjá okkar fólki.

Væri ekki öllum sama hér á Íslandi? Við tökum við fleiri hælisleitendum m.v. höfðatölu en Svíþjóð en ég hef ekki orðið var við neitt vesen hjá okkar fólki.
8 comments
Það er alveg til hér, gott dæmi er þegar múslimafélagið fékk vilyrði fyrir lóð undir mosku og einhverjir vanþróaðir villimenn grófu svínshöfuð á lóðinni.
En hef ekki séð neitt svona svosem.
Mér finnst soldið eins og Úkraína hafi sýnt það að öll þessi andúð við að taka við flóttamönnum er bara rasismi.
Flest flóttafólk hingað til hefur verið dökkt á hörund og/eða múslimar. Þá er barist á hæl og hnakka gegn hverjum einasta flóttamanni, talað um einhverjar innrásir, talsmenn Útlendingastofnunar mæta sorgmæddir í viðtöl og útskýra að svona séu bara reglurnar osf.
Svo þarf allt í einu hvítt, kristið fólk að flýja land og þá bara bring it on, reddum þessu fólki, samstaða, húrra. Ekkert tal um að við eigum ekki efni á þessu. Engin krókódílatár fyrir öryrkja og gamalmenni.
Sem er auðvitað frábært – En mikið djöfull hefði verið gott ef við hefðum haft manndóm í okkur að bregðast svona við t.d ástandinu í Sýrlandi.
Hvur skrambinn er að gerast í þessu myndbandi? Einhver að tína hluti upp af jörðinni fyrir utan bílinn sinn, svo kemur hópur af fótboltabullum sem hoppa á bílnum hans, og svo er allt fullt af löggum. Er eitthvað context sem allir eru með fyrir þetta sem ég hef mist af?
Ertu að spyrja hvort hér séu íslamistar sem beita fólk ofbeldi fyrir að brenna bækur eða fávitar sem vanvirða trú og menningu annarra samfélaga en þeirra eiginn?
[Ísland tekur ekki við fleiri hælisleitendum en Svíþjóð m.v höfðatölu](https://en.wikipedia.org/wiki/List_of_countries_by_refugee_population)
ÍÞÞ: Fólk að monta sig yfir hvað það er líbó og hvað allir hinir eru vondir (örugglega hvítir og miðaldra þar að auki)
Það er í sjálfu sér aulalegt að vera að brenna Kóraninn, en að bregðast við því með ofbeldi er margfalt verra. Þetta er fyrir mér ákveðinn veggur í allri umræðu um innflytjendur; ég býð velkomna alla þá sem hingað vilja koma og taka þátt í að byggja upp Íslenskt samfélag, en með því skilyrði að í þeim tilvikum þar sem ágreiningur kemur upp milli laga ríkisins annars vegar og trú þeirra hins vegar, að þá skuli trúin lúta í lægra haldi fyrir reglum ríkisins.
„Gjaldið þá keisaranum það sem keisarans er og Guði það sem Guðs er.“
Af því litla sem ég hef kynnst fólki á Íslandi af íslam trú, er þetta bara frekar eðlilegt fólk að leita að betra lífi og lífsgæðum fyrir sína fjölskyldu.
Ég er nú ekkert voðalega hrifinn af íslam, en ekki frekar en kathólisma, gyðingdóm, lúthertrú eða öðrum stofnunum sem selja sambærileg hugmyndafræði.