Sjálfstæðisflokkurinn í fyrsta sinn undir 20 prósent í þjóðarpúlsi Gallup

16 comments
  1. íslendingar munu samt kjósa hann aftur. Þeir geta varla fokkað öllu upp 37 sinnum í röð? neee

  2. Vil ekki vera neikvæður, en ég trúi varlega skoðanakönnunum sem spá xD lágu fylgi en xP háu. Píratar virðast vera ansi vinsælir í könnunum meðal óánægðra kjósenda, en þegar að kjörborðinu er komið virðist það fylgi ekki skila sér í kassann.

    Öfugt er farið með Sjálfstæðisflokkinn. Þeir oft síga niður um einhver prósentustig í könnunum en þegar allt kemur til alls virðast mótmælin sjaldan komast lengra en það.

  3. Þeir dala alltaf rosalega í fylgi þegar það er svona langt í kosningar, svo fá þeir alltaf miklu meiri atkvæði þegar loksins kemur af því að kjósa.

  4. Hversvegna er Sjálfstæðisflokkurinn búinn að ríghalda í Bjarna Ben í öll þessi ár, eins og það sé enginn annar valkostur til í öllu landinu.

    Burt séð frá öllum spillingar-, vanhæfis-, og furðu-málum í kringum þennan pabbastrák, bæði fyrir og eftir aðkomu hans að stjórnmálum, þá er þetta versti formaður nokkurns flokks þegar litið er á alla íslandssöguna.

    Bjarni hefur tvisvar áorkað að draga flokkinn niður í sögulega lægsta fylgið sitt. Hvernig er það eitt og sér ekki nóg til að hafna leiðtoganum? Hvað er það sem Bjarni hefur sem lætur Sjalla ríghalda svona í hann þegar það er aldrei friður í kringum hann, aðrir bera ekkert traust til hans á sama tíma og hann tætir fylgið af flokknum sem hefur aldrei komist aftur á þann stað sem hann var fyrir formennskutíð Bjarna.

    Hvernig er hægt að líta fram hjá bókstaflega öllu þessu? Hvað hefur hann sem bætir upp fyrir þetta allt? Þetta er komið svo langt yfir þverbak að það lítur út fyrir að Bjarni sé með eitthvað “dirt” á hvern einasta kjósanda Sjálfstæðisflokksins – en ég veit það er ekki satt.

    Svo ekki sé minnst á formenn annara flokka, eins og VG og Framsóknar, sem ólm vilja vinna með þessum manni og flokkinum hans – vitandi hvað gerist við fylgi allra flokka sem vinna með Sjöllum.

    Við erum klikk.

  5. Ég man þegar Sjallarnir voru áskrifendur að 40-50% fylgi. Það var alltaf bara spurning hver væri með þeim í stjórn.

    Núna eftir 20+ ár af stanslausum uppljóstrunum um spillingu og annað er bara eftir fólk sem er A) Heilaþvegið B) á lífibrauð sitt undir flokknum C) fólk sem vinnur fyrir flokkinn

  6. Ekki séns að þetta endist fram að næstu alþingiskosningum. Ég verð hissa ef Sjallarnir missa svo mikið sem einn þingmann.

  7. Skiptir engu. Það eru þrjú ár í kosningar. Það er enginn að fara að taka ábyrgð á bankaruglunu og Kata og Sigurður ætla ekki að slíta samstarfinu. Ekkert breytist. Enginn mun pæla í þessu eftir þrjú ár og allir sem minnast á þetta munu verða kallaðir tuðarar.

    Rinse and repeat.

  8. Sveitarstjórnarkosningar eru líklegar til þess að stjórna mestu um framtíð Bjarna.

    Sjálfstæðisflokkurinn virðist ólíklegur til að stjórna í borginni, tapa fylgi þar meira að segja.

    Þeir eru almennt ekki að sækja í mikla aukningu á landsvísu og ekkert öruggt með að þeir verði vinsælir til samstarfs í öðrum sveitarfélögum og komist þar í stjórnir.

    Ef að það gerist og mikið af fólki sem taldi sig vera í nokkuð öruggum sætum nær ekki kjöri og þarf að fara að betla störf “í gegnum flokkinn” eins og oft vill gerast. Þá gæti ég séð óánægju þess sökkva Bjarna þar sem að það er ekki mikið um svoleiðis störf í boði þar sem að hann hefur boðað niðurskurð og aðhald hjá ríkinu.

    Þetta verður eitthvað allavega, það verður áhugavert að sjá hvernig sjallar munu díla við höfnun lista sinna ef að það gerist.

  9. Þetta gerist alltaf, svo hrekkur áróðursmaskínan í gang og þeir fá sín 25% atkvæði. Hættið að kaupa það að Sjálfstæðisflokkurinn sé eini flokkurinn sem geti sinnt efnahagsmálum á Íslandi! Djöfull er ég orðinn langþreyttur á þessu.

  10. Ég meina það er hægt að setja dæmið upp þannig að hvern einasta dag sem Bjarni hefur lifað, hefur þurft að afskrifa rúmlega 10 milljónir vegna fyrirtækja sem hann hefur átt eða stjórnað (https://stundin.is/grein/15071/).
    Það þurfti að afskrifa rúma 200 milljarða á núverandi gengi vegna fjölskyldufyrirtæki sem hann átti eða var að stjórna. (Hann er 52 ára, 52 ×365=18980dagar. 200.000.000.000÷18980= 10.537.407kr hvern dag)
    Hann gefur rúmlega 2 milljarða í afslátt á sölu á ríkiseign (https://www.ruv.is/frett/2022/03/23/hlutabref-i-islandsbanka-rjuka-upp-og-kaupendur-graeda). Þannig þetta er alveg mjög letilega og lauslega reiknað og er algjör lágmarksupphæð.
    Hann kannast aldrei við neitt sem hann er spurður um, pabbi hans er alltaf eitthvað að spila inn í skandalana hans.
    Það kannski skiptir ekki hvort fólk telur að hann sé spilltur eða bara glataður í viðskiptum en sem einhverskonar íslenskur Forest Gump endar sem formaður Sjálfstæðisflokksins þá kannski vantreystir fólk honum og mér finnst það ekki skrítið.

  11. Hvernig er 20% af landinu ánægt með BB?

    Ef að það er ekki nó að selja egnir fólksins á undir verði til pabba síns og seigja okkur á sama tíma að éta skít hversu slæmt þarf það að vera til að henda þeim út?

Leave a Reply