
Kíkti á Ægissíðufoss í dag og þegar ég sá þessi skilti gat ekki annað en gengið alla leið að ánni. Ég fór síðast þangað f.ca. 2 árum og þá voru hvorki stiginn né skiltinn þarna. Spá í að gera mitt eigið skilti og reka það niður í grasið þarna. “Geri það ef mér sýnist!” Allar uppástungur vel þegnar.
5 comments
Minnti mig á atvik fyrir rúmlega 10 árum þegar ég var að veiða háf í Þykkvabæjarfjörunni. Þá mætti ég manni á fjórhjóli með riffil á bakinu og þegar ég spurði hann hvað hann væri að gera þá sagðist hann vera að skjóta seli. Ég spurði hann meira og þá var hann víst á launum frá veiðifélaginu sem sér um Ytri-Rangá sem fannst það réttlætanlegt afþví selurinn borðaði laxa! Ég varð frekar pissed yfir þessu og dauðsé eftir að hafa ekki kannað hvort það væri yfirhöfuð löglegt. Selurinn hefur verið að narta í laxa þarna forever og það er samt nóg af laxi. Grunar auðvita að veiðifélagið hafi sett þessi skilti upp líka.
Getur einhber hér svarað því hversu langt almannarétturinn gengur? Fólki yrði eðlilega brugðið við ókunnuga í bakgarðinum sínum, en þetta er úti í sveit. Get ekki séð að landeigendur geti bara bannað fólki að labba þarna um.
Mættir tilkynna þetta til Umhverfisstofnunar. Þetta sýnist mér vera frekar skýrt brot á náttúruverndarlögum/almannarétti.
Nokkuð viss um að þessi skilti hafi ekkert vægi ef að það væri látið reyna á þetta fyrir dómstólum.
Veit ekki alveg tilganginn með þessu hjá þeim er setti þetta upp, er þetta til að stoppa menn í að veiða í ánni? Að eiga veiðirétt er ekki samasem merki við að mega hefta aðgengi að einhverju.
Hvað er að ykkur?
Sá sem á landið og byggði þennan stiga má banna þér að nota stigann sinn.. Þið verðið bara að klifra niður sjálf
Atlaga að íslandsmeti i tilætlunarsemi í þessum þræði