
Er einhversstaðar verið að halda utan um loforð sem flokkarnir geta ekki staðið við?
Ég sá einhversstaðar að Framsókn var með á stefnuskrá hjá sér að fullgilda samning Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðra sem var fullgiltur árið 2016.
Maður veit alveg að það er ekki hægt að trúa neinu sem neinn segir á þessum tímapunkti, en þætti alveg gaman að sjá hvort fleiri svona dæmi séu til.
Samningur SÞ um réttindi fatlaðra var fullgiltur árið 2016.
Og nei, svoleiðis gerist ekki á sveitarstjórnarstiginu.
Framsókn er grínframboðið í ár. pic.twitter.com/glfCbtXSWe
— Jóhann Páll 🔴 (@JPJohannsson) May 9, 2022
7 comments
Missti trú á þessu svokalla “lýðræði” fyrir löngu síðan, tek ekki lengur þátt í kosningum. Sama hvað þú kýst alltaf sama sagan. Kosningaloforðinn eru einungis til að kaupa atkvæði, innihaldslaus loforð.
Ef ég næ að byggja upp drifkraftinn einhvertímann skal ég búa til síðu með lista af fáranlegum kosningarloforðum, eins og að gera veðrið í Reykjavík betra með trjám.
Mig minnir að besti flokkurinn hafi lofað að svíkja öll loforð.
Afhverju er ekki hægt að kæra svona lið sem lýgur sig inná þing og heldur ekki við loforð.
10ára dómur fyrir að komast inná þing og svíkja loforð.
Framsókn er að ruglast á **fullgildingu** og ***löggildingu*** samningsins sem er ekki enn búið að gera. Lögfesting samningsins er mikilvægur liður í að tryggja nauðsynlega lagalega vernd fatlaðra.
Þeir hafa eflaust stolið þessu máli frá Flokki Fólksins eða einhverjum sem er í alvörunni annt um réttindi fatlaðra og notað vitlaust orð eftir fimm sekúndna Google leit.
Annars finnst mér verst þegar flokkarnir sem eru búnir að vera í meirihluta í 8 ár eru að lofa úrbótum í málaflokkum sem þeir hafa hafa sjálfir klúðrað. Samfylkingin, Viðreisn, Píratar og VG eru núna að keyra á auglýsingum þar sem frambjóðendur svífa um með byggingarhatta og tala um að laga húsnæðismál, lóðaframboð og leikskólamál. Hlutir sem hafa SNARVERSNAÐ síðustu 8 ár.
Ég er með stimplahræðslu og get því ekki kosið
Mér finnst fáránlegt að lofa leiguþaki, eða að sveitarfélög fái hlut í fjármagnstekjuskatti og virðisaukaskatti.
Ekki það að ég sé á móti þessu með skattinn, mér finnst það bara óheiðarlegt að tala eins og þú getir gert eitthvað í borgarstjórn sem verður að gerast á þingi. Sérstaklega ef þú talar eins og þannig ætlirðu að fjármagna hugmyndir þínar.