https://www.frettabladid.is/lifid/island-tharf-ekki-ad-vinna-til-ad-halda-eurovision-2023/

“Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er Egilshöll líklegasta staðsetningin fyrir hátíðina, verði hún haldin á Íslandi”

Er Egilshöll í alvörunni besti staðurinn til að halda keppnina?

12 comments
  1. Það er ekki eins og það sé mikið úrval. Egilshöll, Laugardalshöll, Kórinn eða Fífan. Egilshöllin lítur bara mjög vel út í þessum lista og er stærri en Laugardalshöllin

  2. eigilshöllin kemur sterk inn með marga og stóra hliðar sali fyrir búningsaðstöðu, aðstöðu fyrir frétta menn og annað sem þarf.
    kórinn er líka möguleiki.

    það sem hrjáir okkur helst er lofthæðin í þessum höllum mætti vera betri

  3. Ísland á ekki nógu stóran viðburðasal.
    Það þyrfti stærsta lokaða rými sem við getum fundið svo að líklegast flugskýli.
    Við eigum heldur ekki nóg, eða einusinni brot af þeim búnaði sem þyrfti til.
    Það er fásinna að einusinni leiða hugann að því hvað myndi gerast ef Ísland vinni, myndum örugglega þurfa að send þetta til Danmerkur.

  4. munið þið eftir Idol sviðinu?
    eða var það x-factor?

    þetta var neglt saman og var í endanum á smáralind.

    það skiptir litlu hvaða skúr er undir þetta ef að rúmmetrafjöldinn er nægur.

    annars ættum við bara að sleppa því að taka þátt ef að við getum ekki staðið undir því sem fylgir að vinna.

Leave a Reply