Þar sem SCP hafa ákveðið að fylgjast að er enginn meirihluti mögulegur nema SBPC – Nema einhver af þeim flokkum svíkji það samstarf.
Án samfylkingar er eini meirihluti sem B getur myndað DBCF – Sem er mjög hæpið vegna þess að C er með áherslur sem stangast á við bæði D og F.
Framsókn hefur bókstaflega enga stefnu í borginni. Þetta er allt í kjaftinum á honum. Það sem mun gerast er SBPC meirihluti þar sem stefnan verður nánast óbreytt, mögulega með einhverjum pínulitlum breytingum að nafninu til til þess að B geti sagst hafa valdið einhverjum svaka breytingum.
Annars finnst mér lang líklegast að Einar muni bara fá borgarstjórastólinn til þess að friðþægja egóið í honum og Framsókn, en stefnan verði óbreytt. Framsókn getur þá tekið credit fyrir allt sem er gert næstu fjögur árin.
Ef ég hefði kosið sosíalistaflokkinn, þá væri ég ekki sáttur með þeirra útilokun á samstarfi með Viðreisn. Það er dapurlegt að sjá suma vinstri flokka fórna öllum mögulegum valdastöðum sem leyfa þeim að ná einhverjum af sínum áherslum í verk útaf hugmyndafræðilegri þrjósku. Frekar kjósa þessir flokkar að vera gagnslausir í stjórnarandstöðu á meðan aðrir flokkar ná alvöru breytingum fram. Segðu það sem þú vilt um VG (og ég hef nóg um þá að segja), en þeir hafa gert meira fyrir vinstri menn á íslandi en einhver annar flokkur á alþingi seinasta áratug.
Poppkorn er ekkert fitandi er það? Ég er orðinn nógu gamall til að þurfa passa hvað ég borða, og hve mikið; en komandi vikur verða alger bíómynd.
Mér heyrðist samt alltaf á Einari í aðdraganda kosninganna að hann væri í grófum dráttum hlynntur öllum stefnumálum meirihlutans. Nema kannski að flugvöllurinn ætti að vera í Vatnsmýrinni “þangað til betri eða jafngóður kostur finndist fyrir innanlandsflugið” sem er svolítið loðið.
Annars stendur ekkert í þessari frétt sem lá ekki fyrir fyrir kosningar. Click-bait titill sem mætti skilja sem “Framsókn útilokar samstarf við Samfylkinguna” sem setur alla í uppnám.
Um hvað haldið þið annars að málamyndanir þessara flokka snúist? Eru ekki allir flokkar sammála um stóru málin í Borginni, þ.e. þétta byggð, Borgalínan er GO, fleiri leikskólapláss og minni mengun/kolefnisspor?
Ég kann að meta að hér er málefnaleg umræða 🥰😇 glæsilegt 🥰😇
5 comments

https://www.visir.is/g/20222263874d/meirihlutarnir-fimm-sem-eru-i-bodi