1.5 milljón krónur per gígabæt, ekkert út á það að setja

14 comments
  1. Ég held ég myndi einfaldlega bara aftengja netið og ekki koma nálægt því það sem eftir er ferðar. Ég væri vel líklegur til að gleyma mér og ná að mynda ansi stóran netreikning.

  2. Svartfjallaland er ekki í EES og þetta er verðskráin sem símafyrirtækin þar í landi ákveða að rukka íslensku fyrirtækin um.
    1.513,56 kr per MB hjá Vodafone og 1.890 kr. /MB hjá Nova t.d.

  3. Hættulegt svæði. Man þegar ég var í Króatíu (sem er með í reikisvæði Evrópu) en nálægt landamærum við Svartfjallaland.

    Síminn var stundum að tengjast við turna í Svartfjallalandi. Þorði ekki öðru en að slökkva á öllu.

  4. Mæli með að kíkja í Kotor! Hafði sjálfur slökkt á farsímagögnum (mobile data) á meðan ég var þar. Bátsferð um flóann er líka snilld þrátt fyrir að vera mega túristagildra.

    Annars minnir mig að það sé verðþak hjá flestum, ef ekki öllum, símafyrirtækjunum þannig að það lokast þegar þú ert kominn upp í fimmþúsundkallinn.

    Gôða skemmtun!

    P.s. Sygic gps appið leyfir þér að sækja auðveldlega gps kort af heilu löndunum til að nota netlaust. Það er líka hægt á Google Maps, en er meira ves.

  5. Það kitlar pínu að skreppa þangað og sjá hversu háa skuld ég get komið mér í.
    Væri ekki leiðinlegt að geta náð sér í 100.000.000kr skuld fyrir að kaupa sér nokkra leiki.

  6. Er einmitt á leið til Morókkó í sumar og ákvað að heyra í símanum um það. Og já, eitt MB kostar 3000 kr.

  7. Eitt af því góða sem ESB hefur gert, setja lög á þessar glæpsamlegar of rukkanir og verðskrám.
    Símafyrirtækin reyndu að þræta fyrir því og segja þetta væri eðlilegur kostnaður við það vera með síma í öðrum þjóðum.. surprised pika chu face þegar það var síðan bara lygar.

Leave a Reply