
Maðurinn minn fékk þessa bók sem er frá 1858, með kvæðum og sálmum eftir Hallgrím Helgason. Við vorum að velta fyrir okkur hvort þetta væri einhver gersemi og hvort það væri til mikið af eintökum?
Hér er linkur á fyrstu síðuna í bókinni 🙂

Maðurinn minn fékk þessa bók sem er frá 1858, með kvæðum og sálmum eftir Hallgrím Helgason. Við vorum að velta fyrir okkur hvort þetta væri einhver gersemi og hvort það væri til mikið af eintökum?
Hér er linkur á fyrstu síðuna í bókinni 🙂
1 comment
*Hallgrím Pétursson
Ég fann [þetta](https://atom.skagafjordur.is/index.php/andlegir-salmar-og-kvae-i-ess-gu-hraedda-kennimanns-og-jo-skalds-hallgrims-peturssonar) sem vísar í áttundu útgáfu frá 1834 og þú ert með níundu þarna.
*Andlegir Sálmar og Kvæði þess guðhrædda Kennimanns og Þjóðskálds Hallgríms Péturssonar. 8da útgáfa, eptir þeirri 5tu, fullkomnustu, sem útkom á Hólum 1773. Seljast óinnbundnir 72 ß. reidu Silfurs. Videyar Klaustri, 1834. Prentadir á Forlag Sekret. O. M. Stephensens, Vice Jústis Sekretéra í Islands konungl. Landsyfirétti af Bókþryckjara Helga Helgasyni.*
Hér er að finna [tíundu útgáfu](https://books.google.co.uk/books?id=DgONoxcUNUIC&pg=PA72&lpg=PA72&dq=andlegir+s%C3%A1lmar+og+kv%C3%A6%C3%B0i+%C3%BEess+gu%C3%B0hr%C3%A6dda+kennimanns+og+%C3%BEj%C3%B3%C3%B0sk%C3%A1lds+hallgr%C3%ADms+p%C3%A9turssonar+ix&source=bl&ots=Z4wLWC-eQ_&sig=ACfU3U0irkqVWL2woNyItTZBLB9KG9lJIQ&hl=en&sa=X&ved=2ahUKEwiIi7W44IX4AhUmwAIHHRftAPgQ6AF6BAgCEAM#v=onepage&q=andlegir%20s%C3%A1lmar%20og%20kv%C3%A6%C3%B0i%20%C3%BEess%20gu%C3%B0hr%C3%A6dda%20kennimanns%20og%20%C3%BEj%C3%B3%C3%B0sk%C3%A1lds%20hallgr%C3%ADms%20p%C3%A9turssonar%20ix&f=false) á Google Books frá árinu 1852 sem gerir líklegt að þín bók sé 1838, ekki 58, enda vesen að gefa út 10. útgáfu á undan þeirri 9.
Hér eru upplýsingar um [sama eintakið](https://hollis.harvard.edu/primo-explore/fulldisplay?docid=01HVD_ALMA211888580660003941&context=L&vid=HVD2&lang=en_US&search_scope=everything&adaptor=Local%20Search%20Engine&tab=everything&query=any,contains,andlegir%20s%C3%A1lmar%20og%20kv%C3%A6%C3%B0i%20%C3%BEess%20gu%C3%B0hr%C3%A6dda%20kennimanns%20og%20%C3%BEj%C3%B3%C3%B0sk%C3%A1lds%20hallgr%C3%ADms%20p%C3%A9turssonar%20ix&offset=0) og þú finnur á Google Books sem er varðveitt á bókasafni Harvard háskóla. Þar segir meðal annars:
*First issued under title: Nockrer lærdoomsrijker psalmar og andleger kvedlingar (1755).*
Hér er [endurprentun frá 2010](https://www.amazon.com/Gu%C3%B0hr%C3%A6dda-Kennimans-%C3%9Ej%C3%B3%C3%B0sk%C3%A1lds-Hallgr%C3%ADms-P%C3%A9turssonar/dp/1144349826) til sölu á Amazon.
​
Lengra hef ég ekki tíma til að grúska í kvöld, en ég vona að þetta geti beint þér í einhverjar áttir. Tölvupóstur á Árnastofnun væri sennilega ekki vitlaust næsta skref.