Sindri sýknaður af meiðyrðum í garð Ingólfs veðurguðs

7 comments
  1. Er þetta ekki tiltölulega fucked dómur?

    Ég er ekki viss um að það sé hollt að ég geti lýst því yfir opinberlega að óvinur minn ríði börnum, án þess að vita neitt um það.

    Niðurstaðan byggir helst á því að á Íslandi sé samræðisaldur undir 18 ára, og að annað fólk hafi sagt undir rós að Ingó hafi sofið hjá börnum undir 18 ára.

  2. Þar sem engar eru kærurnar, er engin sekt. Það er eitthvað mikið að hjá héraðsdómi. Ef hæstaréttur og jafnframt landsréttur staðfestir þennan dóm þá þarf að vísa málinu til mannréttindadómstóls evrópu þar sem það mun örugglega vinnast. Sama er mér hverjir koma að þessu máli og öðrum líkum. Ef engar eru kærurnar er ekkert að rannsaka.

  3. Tjáningarfrelsi hins almenna Íslendings lifði þessa atlögu af, en þetta verður líklega ekki sú síðasta. Elítustéttina dreymir um þann dag þegar það verður ólöglegt fyrir almúgann að tjá sig um athæfi þeirra.

  4. Athyglisvert að hann hafi verið sýknaður, ég bjóst við sakfellingu eftir að þessi fimm vitni komu og sögðu bara frá “hearsay”. Enginn raunverulegur vitnisburður um annað en það sem þau höfðu heyrt frá öðrum.

    Til dæmis: “Ég heyrði frá Jóa að Lalli hefði stolið bílnum”.
    Þetta hefði aldrei dugað til sakfellingar í þesskonar máli.

    En tjáningarfrelsið lifir og það er svosum ágætt líka.

    Það er áhugavert að sjá hvernig þessi mál munu þróast, hvenær tjáningarfrelsi trompar meiðyrði og hvenær ekki, hvar ætli línan sé dregin? Samkvæmt þessu ætti orðrómur að vera nóg.

    En er það satt að Ingó hafi aldrei verið kærður eða? Búinn að sjá bæði.

  5. **Í lagi að segja um einstakling sem ekki hefur verið dæmdur fyrir barnaperraskap:**

    “X sagði mér að Y væri barnaperri”, “umræðan varðar það að Y hafi verið að barnaperrast”, “Y er ásakaður um að vera barnaperri”, o.s.frv.

    **Alls ekki í lagi að segja um einstakling sem ekki hefur verið dæmdur fyrir barnaperraskap:**

    “Y er barnaperri”.

    ​

    Mér finnst ótrúlegt að nokkrum siðuðum einstakling þyki það í lagi að ásaka annan einstakling um glæpsamlegt og hræðilegt athæfi án nokkurra annara sönnunargagna en sögusagna. Þetta er skelfileg niðurstaða fyrir alla sem vilja búa í heilbrigðu réttarríki og mér þykir mjög dapurt að sjá henni fagnað.

Leave a Reply