Vill lögleiða jafnaðarkaup- Simmi Vill, enn og aftur…..

7 comments
  1. sakna þess þegar hann var bara helmingurinn af Simma og Jóa en ekki íslenskur supervillain

  2. Ég ætla bara að segja sama brandaran aftur.

    Simmi og jói í 70 mínútum hefðu gert grín að þessum Simma sem er orðinn vel sleipur í viðskiptum.

    Þetta er svo ég geti hækkað launin í dagvinnunni og alls ekki til að lækka launakostnaðinn minn. 🤡

  3. Margur verður af aurum api!

    Er ömurlegur frasi af því hann setur orsakasamhengið á hliðina – fólk sem er tilbúið að “vera apar” við náungan er einfaldlega betur sett til að eignast aura í frjálslyndum þjóðfélögum. Það er tilbúið að gera hluti sem við hin veigrum okkur við, eins og að reyna að fá samfélagið allt til að gúddera að taka áunnin réttindi af sjálfu sér, fyrir vilyrði um ódýrari skyndibita.

    Skyndibitin verður samt ekkert ódyrari, frekar en að matvörur urðu ódýrar með tilkomu sjálfsafgreiðslunnar. Þetta fer allt beint í vasa þeirra sem eru tilbúnir að vera apar.

  4. Simmi þarf að læra að hætta að tjá sig og njóta þess bara að vera ríkur. Hann grefur sig í dýpri holu í hvert skipti sem hann opnar munninn.

  5. Þetta er viðbjóðslegt

    Þetta er aðför að fjölskyldulífi og félagslífi fólks.

    ​

    Hann er að yfirfæra reynslu sína sem atvinnurekandi yfir á líf annara, hann þarf að vinna á laugardögum og sunnudögum oft og það hefur áhrif á líf hans þótt að hann geri lítið úr því.

    ​

    Hvernig á barnafólk að sinna börnum eða eiga gæðastundir saman ef það er að vinna um helgar ?

    ​

    Þetta er ekki gert til að verðlauna fólk heldur til að letja atvinnurekendur til þess að hafa opið á dagvinnutíma frekar en að fólk sé að vinna á næturnar.

  6. Ef ég leyfi mér að vera mjög rausnarlegur við hugmyndina hans, þá finnst mér hún samt ansi tilgangslaus.

    Ef hann vill setja alla á jafnaðarkaup; þ.a.l. hækka dagvinnulaun og lækka kvöldvinnulaun, endar þetta þá ekki á núlli hjá honum?

    Hver er þá tilgangurinn á þessu? Og hver myndi vilja vinna á kvöldin fyrir sömu laun og á daginn?

    Ek ku ei skilja þennan mann.

  7. Þvílíkur kúkalabbi.

    Reyna að rebranda jafnaðarkaup sem einhvern “grunntaxta”, jafnaðarkaup er algengasta vopn drulluhala eins og hans í veitingageiranum til að svindla á skólafólki og öðrum sem vinna fyrst og fremst á kvöldin og um helgar, Subway var t.d. þekkt fyrir þetta hér áður fyrr amk.

    Þennan mann þarf að bróka rækilega og hengja upp á sína eigin níðstöng.

Leave a Reply