Jordan Peterson á leið til landsins og treður upp í Háskólabíó – Vísir

7 comments
  1. Það er alltaf ánægjulegt þegar áhrifamestu hugsuðir heims koma í heimsókn til Íslands. Vonandi gengur ferðin vel hjá honum og gestirnir eiga gott kvöld.

  2. Ég vona að það verði ekki eitthver cringy mótmæli sem skapar bara miklu meiri umræðu en er nokkurntímann þörf um þennan aula

  3. Eitt af því fyrsta sem hann talar um í sínu “magnum opus” er draumur sem hann dreymdi um að hann hefði tekið skapahár ömmu sinnar og nuddað þeim framan í sig.

    Hann varð frægur af því að ljúga um og/eða misskilja algjörlega frumvarp í Kanada sem skilgreindi kynbirtingu sem verndaðan rétt hvers og eins. Peterson hélt því ítrekað fram að hann yrði handtekinn ef að hann neitaði að nota þau fornöfn sem fólk bæði hann um að nota um sig, eða jafnvel bara ef hann óvart kallar transkonu “he.” Seinast þegar ég tékkaði var gífurlegur fjöldi Kanadískra málfrelsisstríðsmanna í fangelsi út af þessum nýju lögum: 0.

    Hann talar fyrir því að borða bara rautt kjöt. Það má salta það.

    Hann tók þátt í rökræðu um Marxisma við Slavoj Zizek. Hann viðurkenndi það fúslega, og var jafnvel stoltur, að hann hafi lesið **Kommúnistaávarpið** í bak og fyrir sem undirbúning fyrir rökræðuna. Fyrir þá sem ekki vita er Kommúnistaávarpið dreyfibæklingur, ekki Marxískur fræðitexti. Í sömu rökræðu spyr Zizek hann um hinn svokallaða “Cultural Marxism” sem Peterson talar endalaust um að sé að eyðileggja vestrænt samfélag og biður hann um dæmi um menn sem aðhyllast þessa hugmyndafræði. Sigmundur Davíð hefur sýnt af sér betri frammistöðu í því að slá frá sér spurningar sem hann hefur engin svör við.

    Hann notar hegðun og líffræðileg ferli humra sem fordæmisgefandi fyrir því hvernig við ættum að haga mannlegu samfélagi.

    Þrátt fyrir að vera giftur og eiga börn, er hann [incel.](https://www.youtube.com/watch?v=V9PEUAbgEBs)

    Þegar hann varð háður benzos var það fyrsta sem honum datt í hug að láta setja sig í dá til að komast hjá fráhvarfseinkennum. Læknar í Bandaríkjunum vildu ekki setja hann í margra vikna dá. Hann fór til Rússlands. Dóttir hans ítrekaði það oft á þeim tíma að hann væri “líkamlega háður, alls alls alls ekki andlega.” Hann hafði oft talað um að fíklar hefðu átt að taka betri ákvarðanir til að verða ekki fíklar. Sagan á bakvið það hvernig hann varð háður er alveg hræðileg og enginn ætti að þurfa að ganga í gegnum það sem hann og fjölskyldan hans gengu í gegnum – en viðhorf hans breyttist ekki neitt, enda var hann ekki fíkill. Hann var bara líkamlega háður lyfjum.

    Eitt af lykilatriðunum í hans heimspeki er að þú eigir að taka til í eigin herbergi áður en þú reynir að breyta heiminum.

Leave a Reply