
Það er alveg óþolandi hvað lögreglan er að gera lítið úr sumum atvikum þegar kemur að hjólreiðum, hlaupahjólum og jafnvel gangandi vegfarendum.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem lögreglan downplay-ar svona atvik
Þetta er árás en ekki slys.
https://www.visir.is/g/20222271905d/ekid-a-hjol-reida-mann-yfir-hjolid-og-svo-af-vett-vangi?fbclid=IwAR3akMMlrwSXw5XhdNLRB_-_DCwjVQu3CeaQFJjNkUsF9P3Tpl2l1FRCJZQ
7 comments
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill ekkert gera með fólk sem að hjólar. Hefur þú séð hversu illa þau standa sig í hjólaþjófnaði?
Furðuleg lýsing. Vitnisburður er um að maðurinn hafi verið að þenja vélina og flauta, þar af leipandi er augljóst að hann vissi af hjólinu og þar af leiðandi er þetta viljaverk, en samt er það bara stimplað sem slys út í bláinn?
Og hvað sem því líður þá er allavega ekki slys að bruna af vettvangi eftir atvikið frekar en að stökkva út úr bílnum og reyna að aðstoða manninn sem þú varst að slasa.
Ver þetta trend hjá bílafólki að hata hjólreiðafólk og fólk á hlaupahjólum ekki að enda? Þetta er komið út í ofbeldi. Það er bókstaflega allt gert fyrir fólk á bílum. Helmingurinn af landinu er þakin í malbiki og allsstaðar þar sem maður fer eru vegir til að keyra bíla, og stæði til að leggja þeim, sem við hin þurfum að taka sveig í kring um, eða bíða eftir að *fá* að fara yfir. Enginn annar hópur fær næstum því svona mikinn forgang yfir alla aðra, en samt er það ekki nóg? Samt öll þessi reiði? Hvað er málið?
Það er alveg kominn tími til að stofna einhverja sveit sem getur haldið uppi lög og reglum. Svona til að leysa glæpi og jafnvel fyrirbyggja þá.
Hvernig færð þú það út að að lögreglan telji að um slys sé að ræða?
Vá hvernig væri að róa sig aðeins í æsingnum hérna! Lögreglan er undirmönnuð og undirfjármögnuð og ÖLL mál sem hún vinnur í taka laaaangan tíma. Jájá kann að vera að þetta hafi verið árás, en leyfum löggunni að vinna í þessu máli..ók?
Kíktu á fleiri fréttamiðla [https://www.frettabladid.is/frettir/telja-umferdarslys-i-gaerkvoldi-ekki-hafa-verid-ohapp/](https://www.frettabladid.is/frettir/telja-umferdarslys-i-gaerkvoldi-ekki-hafa-verid-ohapp/)
Á þetta ekki heima hérna.
https://img-9gag-fun.9cache.com/photo/a71Pye2_460svav1.mp4