
Ég vona að svona PSA megi vera hérna inni.
Fyrr í dag var á Vísi birt [samstarfs-grein](https://www.visir.is/g/20222272993d) (þ.e. auglýsing sem er látin líta út eins og blaðagrein) um Nespresso Vertuo, sem er kaffivél áþekk nespresso vélunum. Við fyrstu sýn virðist munurinn vera sá að kaffið úr Vertuo sé með froðu (e. crema) og sé þ.a.l. betra. Raunverulega ástæðan fyrir tilvist þessarar vélar er hins vegar önnur, og er sú að Nestlé vill vera eini valmöguleiki eigenda til að kaupa kaffihylkin sjálf:
Nespresso vélarnar eru tiltölulega algengar, sem og ódýrar. Þegar Nestlé settu þær á markað var viðskiptamódelið hið svokallaða razor-and-blades módel, sambærilegt því sem framleiðendur prentara nota: vélin ódýr, jafnvel seld með tapi, því alvöru peningurinn kemur frá sölu áfyllinganna. Til að byrja með var Nestlé enda með einkaleyfi á sölu hylkjanna í vélarnar og gat haldið verðinu háu. Þessi einkaleyfi eru hins vegar útrunnin, svo nú eru í boði talsvert ódýrari hylki í ljósi samkeppni á markaðnum.
Nestlé þurfti því að finna nýja leið til að halda markaðnum í sínum greipum, og byrjaði því að framleiða Vertuo, sem tekur öðruvísi hylki. Hylki sem Nestlé er með einkaleyfi á að selja, og selur þau dýrum dómi. Aukinheldur eru þau með strikamerki sem vélarnar lesa, eflaust til að flækja enn fyrir um fyrir öðrum framleiðendum þegar einkaleyfin renna út og e.t.v. búa til lagalegar flækjur seinna meir.
Ástæðan fyrir því að ég er að skrifa þennan póst er af því mig grunar að margir þeirra sem kaupa þessa vél gera ráð fyrir að geta keypt kaffi frá öðrum framleiðendum rétt eins og með hefðbundnu hylkin. Ekki láta platast.
Fyrir utan ofangreint er þetta kaffi undir meðallagi gott sem og mér skilst að Nestlé sé almennt vafasamt fyrirtæki (veit ekkert um það hins vegar, bara heyrt það).
3 comments
Hvar er gott að kaupa hylki sem passa í eldri Nespresso vélarnar hér á Íslandi?
Væri alveg til í að prófa fleira en það sem þeir eru með sjálfir.
Sem kaffi unnandi og áhugamanneskja um kaffi almennt, þá skal ég alveg segja að hylkjakaffin eru alveg ágæt svona allt í lagi til að byrja morgnana og jafnvel fá sér að hádegi. En stærsti sjarmi kaffis er að mínu mati að auka færni og hæfni þína sömuleiðis þekkingu þinni á hráefninu og hversu fjölbreytilegt kaffi getur verið einfaldlega hvaðan það kom frá heiminum, hvernig það var ræktað og unnið. Þar af leiðandi finnst mér einfaldlega hylkjavélar, þá þessi ofangreind líka vekja afar lítinn áhuga hjá mér en skil samt að flestir nenni ekkert endilega að byrja morgnana á mala kaffibaunir og mæla magn sömuleiðis að passa að réttur þrýstingur verði til að búa til mjög góðan espresso sem þú síðan freyðir mjólk með mikilli nákvæmni og svo með listrænu yfirbragði býrð til þennan yndislega drykk sem kaffi er.
Það er samt þannig að þessi einfaldleiki sem boðið er uppá sem býr til alveg ágætan kaffibolla er náttúrlega eitthvað sem sumir væntanlega eru tilbúnir að borga meira fyrir. Skil líka alveg að sem fyrirtæki auðvitað vilja þeir búa til þessa stöðu, þó eru þessar hylkjavélar ekki spennandi fyrir mér með fullri virðingu fyrir þessari væntanlegri góðu kaffivél þá er það einfaldlega ekki fyrir mig og ég vona að fólk kynnist kaffi á fleiri vegu en bara með einhverjum hylkjum. Kaffi er bæði vísindi og list, ég hef hvergi smakkað eins gott kaffi og ég bý til heima hjá mér en ég myndi alveg prófa þessa. Þrátt fyrir það hef ég eytt miklum peningum í kaffi svo fyrir mér er ekkert að því að eyða meiri peningum í kaffi.
Ég hef aldrei alveg skilið þetta hylkjadæmi. Hvernig er það einfaldara en venjuleg kaffitrekt?