Selja eigi fíkniefni í apótekum

4 comments
  1. Það er reyndar nú þegar gert, hellingur af þeim.

    En ég skil hvert hann er að fara og er fullkomlega sammála. Það er ekki hlutverk ríkisstjórnar að segja einstaklingum hvað þeir megi innbyrða, þannig jafnvel EF refsistefnan virkaði þá væri hún óásættanleg.

    Sú staðreynd að hún virkar svo alls ekki og hefur gert öll vandamál verri sem hún átti að leysa, er bara súra rúsínan í endanum á þessari vel rotnuðu pylsu

  2. Ég hef stundum talað um þetta. Það myndi leysa svo mörg vandamál tengd vímuefnum og neyslu þeirra ef að þau fengjust í Vínbúðinni eða í næsta apóteki.

    * Ef lyfin væru lögleg væri fólk, sem missir tökin á neyslu þeirra, líklegra til þess að leita sér aðstoðar og væri síður líklegt til þess að útskúfast úr samfélaginu,
    * Ef lyfin væru lögleg væri stórlega dregið úr rekstrargrundvelli afleiddrar glæpastarfsemi á borð við smygl og framleiðslu ólöglegra efna,
    * Ef lyfin væru lögleg yrðu þau regúleruð og síður hættuleg þeim sem þeirra neyttu. Hver myndi svosem kaupa eitthvað glundur af dópsala á götuhorni ef sá hinn sami fengi sama kick út úr efni sem hann fengi löglega?

    Ég held ekki að neysla vímuefna sé skaðlaus en ég held að samfélagið væri betra ef neyslan væri uppi á borðum. Það væri svo miklu auðveldara að díla við hana þannig.

  3. Hvar stendur fólk gagnvart þvi að afnema alla lyfseðilskyldu eða takmarkast þetta jákvæða viðhorf hérna einungis gagnvart því sem almennt telst til þessara helstu afþreyingarefna?

    Þá sem dæmi ýmis fæðubótaefni, hormónar, tilraunalyf, hárlos, þunglyndislyf, athyglisbrestslyf og svo framvegis.

    Svona ef við tökum niðurgreiðslu ríkisins út fyrir sviga sem er alveg veigamikill þáttur, en gerir viðhorf til bannvæðingar aðeins móðukenndara.

    Væri gaman að fara með þessar pælingar aðeins lengra en bara hversu gaman það má vera á djamminu.

    Mér finnst a.m.k. einkennilegt hvernig yfirvöld mega mismuna fólki eftir því hvaða greiningarferli viðkomandi fór í gegn um, sem geta tekið allt of langan tíma, eða meðfæddum eiginleikum sem læknar mega þá skrifa upp á eitt og annað fyrir, en ekki fyrir aðra sem myndu vilja komast í svipaða meðferð en uppfylla ekki sömu kvilla.

Leave a Reply