
Hæ.
Ég er hér kominn til að segja þér frá SpicyVanilla.is sem er Minecraft server rekinn af tveimur vinum úr Hafnarfirði.
SpicyVanilla.is selur ekkert nýtt né flott né flókið, en selur eftirfarandi:
* Íslenskt samfélag í Minecraft (Þjóðerni skiptir engu og allir velkomnir, Danir þó litnir hornauga)
* *Næstum* Vanilla survival Minecraft sem er stillt á Hard.
* Tímabundna gleði í tölvuleikjaformi.
* Kurteist og þæginlegt andrúmsloft.
* [Discord]( https://discord.gg/cchBqesyfg) sem er einmanna.
* Stemmara.
Við erum að keyra 1.19 uppfærsluna og bara aðgengilegt fyrir Java útgáfuna af Minecraft. Við vonum að þetta hafi náð að plata þig til að ná aftur í Minecraft og upplifa nýjungarnar með okkur. Eða ýtt þér út í að prufa þennan eldgamla kubbaleik sem ég lofa að er dýpri en þú átt von á :p
ps. [Minecraft er orðið kúl aftur.]( https://www.mbl.is/sport/esport/2022/01/18/minecraft_er_ordid_kul_aftur/)
5 comments
Spila ekki, en gott framlag
Frábært framtak! Var að ýta við krökkunum, sem spila mikið Minecraft, að prófa. Vona þetta gangi vel hjá ykkur!
Ps. fyrir ps-ið þitt. Minecraft hætti aldrei að vera kúl, hef ekki hætt síðan ég byrjaði að spila í 1.5!
Að koma heim eftir annasaman dag á skrifstofunni og kveikja á Minecraft er einhver mesta núllstilling sem til er.
Ég get eiginlega ekki spilað vanilla lengur eftir að ég fór að spila það heavily moddað. Ég þarf að geta búið til kjarnakljúf og vélar til að gera framleiðslu á samlokum sjálfvirka.
Meinaru mein kamft?