Undrun og von­brigði innan OECD með fram­gang Sam­herja­málsins á Ís­landi – Vísir

6 comments
  1. Spillingin er víða hér á landi. Samherjamálið sýnir þó hvað hægt er að komast ef maður á pening. Vafningsmálið dó sínum drottni og þannig mætti lengi telja.

    Stærstu fyrirtæki eru í eigu Lífeyrissjóðanna sem ráða þó engu þar, að okkur er sagt.

    Er ekki fyrrum forstjóri og eigandi OLÍS nú hættur hjá Högum og orðin stórkall hjá Lifeyrissjóði Verslunarmanna? Sennilega á launum hjá báðum.

    Samtrygging þeirra sem starfa við heilbrigðisþjónustu er fáránlega mikil og kolólögleg.

    Þetta vitum við öll en látum þetta yfir okkur ganga því okkur er sagt að annars fari allt á hausinn hér. Elítan ræður.

  2. Svona í alvöru samt, afhverju fáum við engin svör?

    Rétt eftir þetta gáfu eigendur fyrirtækisins það til barnanna sinna. Til aumingja eins og Baldvins Þorsteinssonar sem gerði sig að fífli með því að stugga við seðlabankastjóra einsog smákrakki á menntaskólaballi. Hversu fucking vandræðalegt var það.

    Spáið í því að vera með svo stóran silfurdildo í kjaftinum að þú lætur eins og menntaskóla bully við seðlabankastjóra. Málið var fellt niður útaf því að lögin sem áttu að stoppa það sem þeir gerðu “voru aldrei undirrituð”, en þeir láta eins og fórnarlömb.

    Aumingi.

  3. Smá útúrdúr, en af hverju er engin önnur útgerð að reyna að eignast kvótaúthlutun Samherja með því að þrýsta á að þetta verði rannsakað?

    Á Samherji bókstaflega allt hérna, eða standa íslenskir kapítalistar bara svona mikið saman að það er enga samkeppni að fá? Það er reyndar alveg fáranlegt að ég sé að biðla til græðgis annara kapítalista til að fá lögum framfylgt á þessu landi en [svona viljum við hafa það](https://youtu.be/iEfbair0OwQ) sem stendur?

  4. Það hefur komið fram að Héraðssaksóknari sem er að rannsaka þetta mál sé undirfjármagnaður.
    Sjálfstæðisflokkurinn er bæði með fjármála- og dómsmálaráðuneytið, ætli það sé einhver tenging þarna?

Leave a Reply