
Mig vantar að komast yfir lista yfir öll óhagnaðardrifin leigufélög sem starfa í landinu. Ég talaði við nokkra opinbera aðila í leit að slíkum tæmandi lista en varð lítið ágengt.
Mér tókst þó að finna tvö slík félög, en þau eru:
* Heimstaden (Norskt félag sem starfar einning á Íslandi)
* Leigufélagið Bríet (leigir eingöngu eignir utan höfuðborgarsvæðisins)
Gætu einhverjir hér hjálpað mér til að gera þennan lista svo að hann verði tæmandi? Það yrði vel þegið og slíkur listi gæti gagnast fleirum en mér sem hingað rata inn.
​
\- – – – Listinn, eftir ábendingar þeirra sem ‘póstuðu’ hér að neðan (líklega ekki tæmandi). – – – –
Ath: Listinn er í stafrófsröð
|*Heiti félags:*|*Athugasemdir:*|*Heimasíða:*|
|:-|:-|:-|
|Bjarg íbúðafélag||[https://www.bjargibudafelag.is/](https://www.bjargibudafelag.is/)|
|Blindrafélagið|Hefur um 20 íbúðir til leigu í húsi félagsins.|[https://www.blind.is/](https://www.blind.is/)|
|Brynja Leigufélag|Leigufélag fyrir öryrkja á vegum ÖBÍ.|[https://www.brynjaleigufelag.is/](https://www.brynjaleigufelag.is/)|
|Búfesti hsf.|húsnæðissamvinnufélag – Starfar á Akureyri og Húsavík, eingöngu.|[https://www.bufesti.is/](https://www.bufesti.is/)|
|Byggingafélag námsmanna||[https://www.bn.is/](https://www.bn.is/)|
|Félagsbústaðir hf|Starfar eingöngu í Reykjavík.|[https://www.felagsbustadir.is/](https://www.felagsbustadir.is/)|
|Heimstaden|Norskt félag sem starfar einnig á Íslandi.|[https://heimstaden.com/is/](https://heimstaden.com/is/)|
|Leigufélag Aldraðra||[https://leigald.is/](https://leigald.is/)|
|Leigufélagið Bríet|Hefur eingöngu leigu-eignir utan höfuðborgarsvæðisins.|[https://briet.is/](https://briet.is/)|
​
5 comments
Heimstaden ?? (Heimavellir) er eingöngu hagnaðardrifið leigufélag.
Sennilega er það bara Bjarg ásamt Búfesti (ekki viss að Búseti í RVK teljist með lengur)
Brynja leigufélag öryrkjabandalagsins.
Byggingarfélag namsmanna (BN).
Hvað með Búseta? Það er ekki beinlínis leigufélag en svona mitt á milli leigu og kaupa.
https://www.buseti.is/
Þann 13. maí sagði Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður samtaka leigjenda á Íslandi, í afar áhugaverðu viðtali í Bítinu á Bylgjunni, að ekkert þeirra leigufélaga sem starfa hérlendis væri í raun óhagnaðardrifið leigufélag. Hann nefnir sem dæmi hvernig slík leigufélög eru rekin í Finnlandi og víðar. Hann þvertekur ekki fyrir að Bjarg íbúðafélag komist næst þessu en það er þó vitaskuld ekki að starfa á almennum markaði fyrir alla leigjendur.
Ég mæli eindregið með því að hlusta á viðtalið sem er að finna [hér](https://www.visir.is/k/e366599c-601e-4dc9-95ce-533448b28d3c-1652428942632).
Þessi listi, sem ég var að setja hér saman, er samkvæmt þessu afskaplega vafasamur og á hugsanlega ekki rétt á sér þegar málið er skoðað í kjölinn.