Seðla­bankinn hækkar stýri­vexti um eina prósentu

7 comments
  1. Þessi blessaði áratugur heldur bara áfram að gefa og gefa. Núna stefnir allt í kreppu á við 1929. helvítis fokking fokk.

    Þessar aðgerðir undanfarið eru bara til að minnka skaðann, Seðlabankinn er búinn að gefast upp á að reyna að halda aftur af óðaverðbólgu næstu 18-24 mánuði.

    Mæli með að fólk fari að rifja upp vöru- og vinnuskipta taktík fyrri kynslóða þegar peningar misstu verðmæti sitt daginn sem að þú fékkst útborgað þannig að fólk keypti bara eitthvað sem að var hægt að nota í skiptum samdægurs.

  2. “Við hækkuðum vexti fyrir 6 vikum og ekkert breyttist, best að hækka aftur!”

    Er það bara ég, eða er þetta eins og eitthvað “throwing shit at a wall and see what sticks” hagstjórn?

  3. Ill nauðsyn. Ef verðið á t.d húsnæði heldur áfram að hækka þá endar það enn verr fyrir almenning. Verðbólga er á hraðri uppleið í löndunum í kringum okkur það mun skila sér hingað.

  4. ÍÞÞ – fólk sem ekki skilur hagfræði.

    Spyrjið ykkur hvað myndi gerast ef seðlabankinn hækkar EKKI vexti?

    Hint: [Halló verðbólga ala 1983.](https://kjarninn.overcastcdn.com/images/Verdbolga_a_Islandi_1918-2017.width-800.png)

    Það að það sé erfitt að kaupa hús er ekki seðlabankanum að kenna, það er húsnæðismarkaðinum að kenna. Öskraðu á byggingaverktaka, borgarskipulag og ríkisstjórnina sem gerir það fáránlega erfitt og dýrt að byggja hús. Öskraðu svo EXTRA hátt á ríkisstjórnina; þessa, og allar sem á undan hafa komið, sem hafa ekki takmarkað útgáfu verðtryggðra lána.

    ÞETTA er ástæðurnar fyrir háu húsnæðisverði, ekki stýrivextir.

Leave a Reply