Víta­lía og Arnar Grant kærð fyrir til­raun til fjár­kúgunar

13 comments
  1. Þolendur orðnir gerendur, gerendur orðnir þolendur.

    Erfitt að þurfa að skipta svona oft um lið.

  2. Það var reyndar sérkennilegt hvað þetta mál koðnaði niður eftir talsverða athygli fyrst til að byrja með. Það var eins og fjölmiðlar hentu því frá sér skyndilega.

    Mjög undarlegt að það sé ekki kæra í gangi, jafnvel þótt að lögmaður hennar sé að reyna að ná “sáttum” fyrir aumar 50 millur per aðila.

    Þetta mál er í raun mjög skrýtið í heild sinni.

  3. > Um sama leiti og skeyta­sendingar gengu sem harðast, leituðu kær­endur til lög­manns sem þekkti til fjöl­skyldu Vítalíu í þeim erinda­gjörðum að biðja hann að setja sig í sam­band við hana í því skyni að komast að því hvað vekti fyrir henni.

    > […]

    > Heimildir blaðsins herma að lög­maðurinn hafi borið þre­menningunum þau skila­boð frá Vítalíu og Arnari að greiða þyrfti al­vöru fjár­hæð til að allir gengju stoltir frá borði og hefðu hags­muni af því að þegja.

    Ég held að enginn þurfi að efast um hver ásetningurinn hafi verið hér. Þetta virðist kristalklárt.

  4. getur einhver útskýrt fyrir mér þetta með golfhópinn? af hverju var kærasta arnar grants að hafa samband við einhverja gaura um að leyfa honum að leika sér með þeim?

  5. Afskaplega er þetta eitthvað mikilvægur golfklúbbur fyrir Arnar sem hún greinilega vill virkilega halda honum í

  6. “Ef Addi fær ekki að leika með ykkur þá klaga ég og þið þurfið að borga alveg þúst.. hundraðogfimmtíu milljónir!”

  7. Snýst þetta ekki frekar um það að meintir gerendur eiga fúlgu fjár og geta bara kært til að kæfa þetta mál niður?

  8. Þetta mál er farið að minna á Depp-Heard og hlutlaust fólk er löngu hætt að trúa málflutningi Vítalíu. Snemma árs var orðrómur um að hún og Arnar væru enn að hittast og það virðist bara hafa verið toppurinn á ísjakanum.

    Nú eru mótbárurnar þær að þetta séu ríkir karlar að þagga niður í stelpu sem þeir misnotuðu. Þau rök halda engu vatni – orðspor þessara manna og fjölskyldulíf er skaðað að eilífu þó það sé ekki einu sinni búið að kæra þá.

    Ég ætla að taka það fram að á sínum tíma mér fannst frábært hvernig Edda Falak gaf Vítalíu vettvang til að segja sögu sína, og guð veit að mér gæti ekki verið meira sama hvað kemur fyrir Ara Edwald og hvað þessir menn heita.

    Á þessum tímapunkti er hins vegar ómögulegt að loka augum sínum fyrir því hvað raunverulega átti sér stað.

Leave a Reply