Sig­mundur grafi undan réttinda­bar­áttu með slóttugum að­ferðum – Vísir

5 comments
  1. Ég ákvað að deila þessu þar sem margir virtust gáttaðir hér í síðustu viku um hvernig Sigmundur Davíð gæti talist transfóbískur og grafi undan transfólki. Hér er nokkuð skýrt dæmi um það.

  2. Ég skil bara ekki hvernig fólk getur hlustað á þennan mann tala og hugsað “Já ég ætla sko að kjósa hann, hann hljómar einsog gáfaður og góður maður”

  3. >„Skortur á umburðarlyndi er verulegt áhyggjuefni en oft á tíðum eru það þeir sem tala mest um umburðarlyndi sem eru gagnrýnastir og árásargjarnastir gagnvart öðrum og telja sig hafa mestan rétt til þess,“ sagði Sigmundur þá.

    Sigmundur fattar kannski einn daginn að óumburðarlyndi fyrir óumburðarlyndi er ekki óumburðarlyndi.

  4. Verð að segja að transsamfélagið er heppið að hafa Uglu sem talsmann. Mér finnst hún alltaf skrifa mjög vel og sannfærandi um þeirra málsstað auk þess sem hún er frekar góð í að forðast orðanotkun sem kúklabbar gætu nýtt sér sem skotmark og afsökun til að hunsa hana.

Leave a Reply