Að láta þau sem nota Hvalfjarðargöng byrja að borga aftur til að fjármagna vonlausar fjárfestingar annarsstaðar.

​

[https://www.visir.is/g/20222285643d/ny-jardgangagjold-aformud-til-ad-greida-fjardarheidargong](https://www.visir.is/g/20222285643d/ny-jardgangagjold-aformud-til-ad-greida-fjardarheidargong)

14 comments
  1. Hvað áttu við vonlaus fjárfesting? Var líka ekki alveg að fatta hvað er átt við með þetta allt saman að vísu.

  2. Burt með alla vegatolla, ég vil ekki búa í samfélagi þar sem allt kostar.

    Þetta er örugglega hugmynd frá fólki sem notar ekki göngin og þess vegna er sama um að þau verði óþægilegri fyrir aðra.

    ​

    Edit: Þar sem enkverjir hafa misskilið vil ég taka fram, “samfélag þar sem ALLT kostar”, þar á ég við endalaus smágjöld þar sem maður getur varla hnerrað án þess að taka upp veskið.

  3. Helmingur af uppsettu afli Landsvirkjunar er á NA horni landsins, er þá ekki sanngjarnt að allavega helmingurinn af 15 milljarða arðgreiðslunni verði eftir þar. Tekur örfá ár að borga þetta þannig. Síðasta loðnuvertíð var þrusugóð og mjög stórum hluta var landað á Austurlandi og veiddur af austfirskum útgerðum, þar bætast við enn fleiri milljarðar sem ríkið hefur í tekjur af landshlutanum (til viðbótar við allar aðrar tegundir sem eru veiddar og landað)… ef þú ert hræddur um að SV hornið sé að gefa landsbyggðinni meira en það tekur, þá er það ákkúrat öfugt. Það væri líka hægt að segja nákvæmlega það sama um þáttöku ríkisins í borgarlínu, af hverju eiga skattpeningar Austfirðinga að fara í 80 milljarða framkvæmd á höfuðborgarsvæðinu sem er alls óvíst að skili tilætluðum árangri? Af hverju eru skattpeningar fólksins á Vestfjörðum að fara í “þjóð”leikhúsið? Sinfóníuhljómsveit “Íslands”? “Íslenska” dansflokkinn? Og fleiri svoleiðis hluti sem er bara dægrastytting á tyllidögum fyrir fólkið á Höfuðborgarsvæðinu.

    Að því sögðu þá hefði ég haldið að það væru önnur göng eða framkvæmdir framar í forgangsröðuninni en þessi, framtíð stöðugrar búsetu á Seyðisfirði er í mjög mikilli óvissu eftir skriðurnar.

  4. Það er bara gott að fjárfesta í innviðum

    Það er ágætt að fjárfesta í landsbyggðinni

    Munum hvaðan gjaldeyristekjur koma

  5. Bjarni myndi rukka okkur um öndunargjald, 3kr á hvern andardrátt, ef hann gæti til þess að geta lækkað skatta og montað sig af því.

    Ég nenni ekki þessum subscription services eins og vegtolla hér til að fjármagna framkvæmdir þar ofan á alla hina skattana og gjöldin.

  6. Ég vill að borgað sé kílómetragjald í staðin fyrir vegtolla. Það mætti taka tilit til þyngdar ökutækisins og þar með sliti á vegkerfinu.

  7. Enginn sem hefur þurft að keyra Fjarðarheiði í vondu veðri myndi telja göng slæma fjárfestingu. Hvaðan þeir peningar þurfa að koma er önnur umræða útaf fyrir sig.

  8. Afhverju eiga þeir sem fara oftar en aðrir Íslendingar gegnum Hvalfjarðargögn og önnur göng að borga meira en aðrir til byggingar Fjarðarheiðarganga? Afhverju er þetta ekki fjármagnað með tekjuskatti? Eða hækkuðu bensín og olíugjaldi (eða bifreiðagjaldi)?

    Sama hvar við höfum vegtolla, þá borga sumir meira en aðrir vegna búsetu, atvinnu og annara þátta.

  9. Akranes og Borgarnes þurfa núna mest af öðrum bæjum að fara lýða fyrir það (aftur) að önnur sveitarfélög eru fjárhagslega með drulluna upp á hnakka með enga lausn á fjárhag vegna innviðaframkvæmda. /ed þau eru mest af öllum að fara lýða fyrir þetta þar sem margir þar td vinna á höfuðborgarsvæðinu. tek það fram ég er ekki þaðan, en finn samt örlítið til með þeim ef þetta kjaftæði verður að veruleika.

  10. Mér þykir það hæpið að Dýrafjarðargöng uppfylli nútíma kröfur, þrír útgangar frá miðju en bara einn þeirra tvíbreitt. Útgangar að Flateyri/Þingeiri og Suðureyri eru einbreiðir með útskotum.

    Öll ljósin dökk-appelsínugul og örfáar viftur, ekki einu sinni allar í gangi.

    Svo voru Bolungarvíkurgöng æðisleg þegar þau voru opnuð, en fyrir hverja peru sem þurfti að skipta út þá var sett þetta gagnslausa dökk-appelsínugula drasl í stað hvítu sem voru upphaflega. Og að sjálfsögðu bara kveikt á þriðju hverri viftu ári seinna.

    Þetta með vifturnar angrar kannski ekki marga en á sumrin þegar bifhjólafólk fer á stjá, þá skiptir það máli hvort þú þurfir að halda inní þér andanum eða ekki.

  11. Það kemur ekki fram í þessari frétt en áætluð Fjarðarheiðargöng, sem gagnast einungis umferð til og frá Seyðisfirði, eiga víst að kosta um 45 milljarða..

    ..Sem gera þá tæplega 70 milljónir á hvern íbúða Seyðisfjarðar..

  12. Finnst að Siglfirðingar og Ólafsfirðingar ættu að vera undanskildnir þessu.

    Bæði það að þeir VERÐA að keyra í gegnum göng OG Strákagöng og Múlagöng eru ekki göng sem ættu að vera gjaldskyld.

  13. Var að klára hringinn í kringum landið og fór í þónokkur göng. Vildi bara koma því á framfæri hversu mikið rusl Hvalfjarðargöngin eru miðað við öll þau göng sem ég keyrði í gegnum, öll betur upplýst, betur ræst og öruggari. Lenti næstum í slysi í Hvalfjarðargöngunum. Helv drasl.

Leave a Reply