Borgarstjórar höfuðborgarsvæðisins með samtals 12 millur í mánaðarlaun

2 comments
  1. Hver ætli heildarkostnaður skattgreiðenda við að halda uppi sex pínulitlum bæjarfélögum í einni borg sé?

    Ekki bara sex borgarstjórar, heldur sex borgar/bæjarstjórnir, sex skrifstofustjórar, sex mannauðsstjórar, sex innkaupastjórar, sex skrifstofur….

    Svo ekki sé talað um falinn kostnað sem felst í því aukna flækustigi sem fylgir því t.d að einföld skipulagsmál verði allt í einu einhver flókin samvinnuverkefni sex bæjarstjórna.

    Þetta er fáránlegt ástand.

  2. Á höfuðborgarsvæðinu búa ekki nema um 240.000 manns. Ef höfuðborgarsvæðið myndi sameinast má áætla að um 120 milljónir myndu sparast á ári **bara** í laun borgarstjóra. Þ.e.a.s. að borga einum bæjarstjóra í stað sex. Svo má ekki gleyma öllu öðru sem fylgir því að reka sveitarfélag – stjórn, nefndir, ráðgjafir og fleira.

Leave a Reply