Erlendir miðlar fjalla um hýsingu haturssíðu á Íslandi – Vísir

4 comments
  1. Nú hef ég aldrei heyrt um þessa síðu, en ég hef engan áhuga á því hvað fólkið bakvið Anti-Defamation League hefur að segja. Þeir hafa algjörlega misst allan trúverðugleika (ef þeir höfðu hann einhverntíman).

  2. Ég hef ekki alveg nægilegan áhuga á þessu máli til þess að lúslesa allan textann á [síðunni](https://mapliberation.org/) þeirra. Í frétt Vísis er því haldið fram að á síðunni sé haft í hótunum, undir rós, en það eina sem ég sé og túlka mætti sem hótanir, svona í fljótu bragði, er eftirfarandi:

    ​

    >Our goal in pursuing this collective mapping was to reveal the local entities and networks that enact devastation, so we can dismantle them. Every entity has an address, every network can be disrupted.

    ​

    Það kann að vera meira um hótanir á síðunni án þess að ég hafi fundið þær, og, ef svo er, þá má endilega benda á þær, en finnst ykkur vera mikill munur á þessu og t.d. “sniðgöngum öll fyrirtæki sem ekki hafa hætt allri starfsemi sinni í Rússlandi vegna stríðsins í Úkraínu”-herferðarinnar sem er alveg á fullu um þessar mundir?

  3. Svona að lesa gegnum síðuna eru þeir bara að tala um andstöðu við nýlendustefnu gegn Palestínu en í fréttinni er talað um að síðan sé gyðingahatur? Það er ekkert gyðingahatur að vera á móti landtökuni…

Leave a Reply