
Ég er ekki með réttu lausnina á vandamálum okkar jarðarbúa en ég hrekk við, eins og fleiri, þegar ég les þessa frétt á [ruv.is](https://ruv.is) : [https://www.ruv.is/frett/2022/07/13/gaedastimpill-fyrir-okkur-verkefnid-og-island](https://www.ruv.is/frett/2022/07/13/gaedastimpill-fyrir-okkur-verkefnid-og-island)
Er fólk orðið vitlaust og lætur bjóða sér allt?
Koltvísýringur er nauðsynlegur öllum gróðri til að vaxa. Gróðurhúsabændur kaupa hann dýrum dómi og sprauta inní gróðurhús sín.
Bændur nota köfnunarefnisáburð á tún sín og akra.
Þá er kolsýra notuð á slökkvitæki.
Ísland er engin mengunarvaldur. Hvorki miðað við aðra né eitt og sér.
Svona blekkingar eins og koma fram í fréttinni að ofan ber að varast.
Trúið þið kannski að Ísland geti bjargað jörðinni frá eyðingu?
7 comments
Æjj drullaðu þér yfir á stjórnmálaspjallið.
Þú ert með þitt eigið subreddit /r/skerid farðu þangað
Er þetta alvöru grín eða marjorie taylor grín?
Vatn er lífsnauðsynlegt fyrir allar lífverur.
En þegar neðri hæðin í húsinu er komin á flot þá hringi ég samt á dælubíl.
Co2 er í gos-og Áfengis drykkjum en enginn er að hætta þeim.
Þessi algengi hugsunarháttur “ég og mínir” eða þá “Ísland er engin mengunarvaldur. Hvorki miðað við aðra né eitt og sér.” hrjáir marga og ekki hugsað lengra varðandi aðra. Fyrstu skref nýrrar tækni er alltaf dýr og aðrar útfærslur þróast út frá henni, ef vel heppnast horfa aðrar þjóðir að nýta sér lausnina.
“Svona blekkingar eins og koma fram í fréttinni að ofan ber að varast.” –Varast hvaða blekkingar?
“Trúið þið kannski að Ísland geti bjargað jörðinni frá eyðingu?”
— Ísland er ekki að fara að bjarga jörðinni en alveg hægt að stíga fyrstu skrefin hér.
Magn koldíoxíðs í andrúmsloftinu er of hátt og er að valda loftslagsbreytingum. Það þarf að ná því magni niður. Auðvitað er enginn að tala um að fara með það alveg niður í núll samt.
Það er ekki nóg að beita þessum aðferðum, það þarf að draga úr eldsneytisnotkun og losun koldíoxíðs, en þetta er samt hluti af lausninni.
Það er heldur enginn að segja að Ísland sé stóri orsakavaldurinn í heiminum sem þurfi að stöðva, eða að við munum bjarga þessu með vinnslu hérlendis. En ef við þróum tækni sem virkar og flytjum hana út, komum henni í nýtingu víðar, þá getum við þannig lagt heilmikið af mörkum.