Neyslu­skammtar verða ekki af­glæpa­væddir

10 comments
  1. Skotið niður þrisvar til þess eins að komast í gegn sem út úr þynnt útgáfa sem að mun ekki gera neitt sem að afglæpavæðing á að gera. Ég elska Ísland.

  2. magnað að gallhörðustu biblíufylkin í BNA eru komin langt fram úr okkur í þessum málaflokki

  3. Ég skil þetta ekki, það er eins og þetta fólk vill ekki hjálpa fólki. Það er ekki eins og þetta er að lagast með því að hafa þetta bannað, það er að hafa þver öfug áhrif. Fólk þorir ekki að fá hjálp fyrr en það er farið út í svo djúpa neyslu að það hefur bara ekki aðra möguleika en að fá hjálp eða deyja. Stjórnvöld eru til eintómar skammar og eru að fara með landið til fjandans í spillingu þanngað til að það eru bara örfáir sem eiga allt og stjórna öllu. Það er ekki langt í það eins og staðan er í dag.

  4. Þetta frumvarp er tilgangslaust, það gerir ekkert sem fólkið vill, og hjálpar engum, það er meðal annara vankanta ekkert sagt um hver flokkast undir þennan “veikasta hóp” sem á að vera undanþeginn refsingum.

    Minn forgangur hér er að það að elta uppi grashausa og svipaða kjána er alger sóun á tíma lögreglunnar og þeir hafa öðrum mikilvægari málum að sinna.

    Hættiði þessum refsingum, þetta virkar ekki!

  5. Hafa þessir flokkar í ríkisstjórn talað fyrir því að afglæðavæða neysluskammta?

    Ef ekki, þá sé ég ekki vandamálið.

  6. oh thank god. Ég trúði ekki að þeir ætluðu að taka af SUS að geta haft þetta á stefnuskránni hjá sér næstu áratugina.

  7. Held að eina svarið við þessu sé að stjórnarandstaðan leggi fram frumvarp um fulla lögleiðingu kannabisefna og …

    Krefji Sjallana um svör við því hvers vegna einstaklingar mega ekki bera ábyrgð á eigin gjörðum og hvers vegna þeir vilji ekki að ríkið fái skatttekjur af sölu á kannabisefnum.

    Krefji VG um svör við því hvers vegna þeir vilji refsa ungu fólki fyrir neyslu efna sem skaðar engan nema þau sjálf.

    Krefji Framsókn um svör við því hvers vegna þeir vilja banna þennan mikla vaxtarsprota fyrir landbúnaðinn og hafa þannig gríðarlegar tekjur af bændum og öðru landsbyggðarfólki.

Leave a Reply