Ég er ný fluttur út og er að leiga herbergi í Kopavogi, 75k á mánuði, aðgang að öllu sem ég þarf, allt í góðu. Eina vandamálið er að netið er hræðilegt. Ég meina [svona](https://i.imgur.com/pFyRgDP.jpeg) hræðilegt. Og verra á PS4.

Ástæðan er að Ljósleiðara kassin er niðri og routerin líka og ég er í herbergi uppi á annari hæð sem þíðir að beintengja er út úr myndini. Ég á Powerline Adapter en hann hjálpaði ekki, þetta hús er svo gamalt hvort sem er að rafmangs instungurnar hér eru þessar gömlu sem þýðir að rafmangs vírarnir í húsinu eru eld gamlir.

Við prófuðum að fá Kastara frá Nova en það breyti voða litlu, er kannski aðeins stöðugra. Ég er beintengtur við Kastaran og tók speedtest og screenshot uppi tengdur við hann.

Ef ég fer með fartölvuna niður er netið frábært 5G wifi eða beintengt, en ekki hér uppi.

Þannig ég er að pæla hvað get ég gert. Eina hugmynd mér dettur í hug er að borga mína eigin internet áskrift og router hjá einhverju fyrirtæki en það verður án Ljósleiðara og ég veit ekki hve gott það er.

Þess vegna er ég hér til að spurja ef einvher hefur lent í svipað og hvað gerðir þú, eða bara ef einhver hefur hugmyndir eða ráð.

4 comments
  1. Eina almennilega lausnin er router eða mesh eða repeater eða hvað sem þig langar á þínu svæði þar sem er lélegt net sem síðan er snúrutengdur í routerinn til þess að eyða þessu lélega svæði.

    Hvernig er það ekki möguleiki að leggja snúru inn til þín en það er möguleiki að vera með þitt eigið net? Hvar væri þessi router þinn?

  2. Úff, splæsa í ótakmarkað 4G og hottspotta?

    Gerði það fyrstu mánuðina mína í íbúðinni minni.

  3. Aldur raflagnsvíra ætti ekki að breyta hraða svona adapters. kopar er kopar. áttu nokkuð mynd af innstungunni sem þú ert að tala um? uppá forvitni 🙂

Leave a Reply