Þrír ráðherrar Sjálfstæðisflokksins mættu í einkaboð milljarðamærings

10 comments
  1. Breyttur titill á þessari “frétt” og allt það.

    Mér finnst mjög áhugavert að á Íslandi teljist það greinilega eðlilegt að æðstu embættismenn ríkisins mæti í einhverskonar auglýsingasamkvæmi hjá einum helsta auðmanni landsins. Sem í þokkabót keypti landið og auðlindirnar fyrir þessar laugar af ríkinu á hálf vafasömum forsendum.

  2. Við erum soddans Littla-Rússland, með okkar littlu Ólígarka.. eða Littlu-Bandaríkin með okkar littlu Þjófa-Baróna, ef það skilst betur / stuðar minna en hið fyrrnefnda.

    Annars er vert að minnast á að Rannsóknarskýrlsa Alþingis tók mjög skýrt fram að ein helsta orsök þess að ríkið gat aldrei tekið á hruninu, þegar það var á annað borð komið á sjóndeildarhringin, var út af sterkum hagsmunatengslum við atvinnulífið, og þá sérstaklega fjármálageiran, sem voru ræktuð á áratugunum fyrir hrun.

    Við erum að endurtaka sömu mistökin og ýttu fjölmögum vinum mínum í að flytja úr landi, og brenndum fullt af fólki út af fasteignamarkaði það sem eftir var. Við erum að gera það af því við lærðum ekkert af fyrri mistökum – annars værum við ekki að endurtaka nákvæmnlega sömu hlutina og við vitum að komu okkur í bobba fyrir 15 árum.

  3. Burt séð frá öllum vafasömu tengslunum að þá lúkkar þetta sem leiðinlegasta partí sögunnar. Ekki nema þetta hafi verið viljandi sett upp sem ljósmyndastúdio / PR efni

  4. Kjánalegur póstur og titil, má semsagt ekki halda opnunar boð og bjóða þeim sem hann þekkir.

    Gegjað fyndið að sjá smáfólkið froðufellandi yfir “Lífið” fréttum, greinilegt að engin má gera neitt ef hann á meiri pening en sumir.

Leave a Reply