
Þegar ég heyri tölu einsog *47 milljarða króna* á ég mjög erfitt að setja það í neitt samhengi, svo ég ákváð að gera smá útreikning til að setja þetta í samhengi til að hjálpa mér og vonandi fleirum.
Á íslandi búa *376.248 manns* samkvæmt Hagstofunni, sem þýðir að fari göngin ekkert fram úr áætlun munu þau kosta *124.918 kr.* á haus á íslandi. Eða hálfa milljón fyrir venjulega 4. manna fjölskyldu með 2 börn.
Á hinum endanum voru íbúar Seyðisfjarðar *685* árið samkvæmt [Wikipedia](https://is.wikipedia.org/wiki/Sey%C3%B0isfj%C3%B6r%C3%B0ur), sem þýðir að “við hin” erum að styrkja hvern íbúa Seyðsifjarðar um *68.613.139 kr.* á haus eða *274.452.555 kr.* á staðal fjölskyldu.
Ef við settum þennan pening í staðinn í ímyndaðan sjóð með hóflega *5%* árlega ávöxtun gætum við greitt út *3.430.657 kr.* til hvers íbúa eða *13.722.628 kr.*
á staðal fjölskylduna okkar.
Sem myndi gefa henni *1,143,552 kr*. á mánuði í tekjur fyrir að vera með búsetu í firðinum, meðal íslendingur var með *670.000 kr.* eða *1.340.000 kr.* á fjölskylduna okkar árið 2020 samkvæmt [Hagstofunni](https://hagstofa.is/utgafur/frettasafn/laun-og-tekjur/laun-2020/) svo Seyðfirðska fjölskyldan fengi þá *85%* af meðaltekjum sambærilegrar fjölskyldu.
Annar saman burður væri að setja þetta í samband við Hvalfjarðargöng sem flestir ættu að þekkja vel.
Þau kostuðu *4,63 milljarðar* árið 1996 samkvæmt [Wikipedia](https://is.wikipedia.org/wiki/Jar%C3%B0g%C3%B6ng_%C3%A1_%C3%8Dslandi) sem samsvarar um *14,5 milljörðum* á verðlagi í dag.
Við gætum því byggt meira enn þrjú Hvalfjarðargöng fyrir ein Fjarðarheiðargöng.
Ef berum saman við fleiri göng af töflunni fyrir ofan lítur gætum við byggt 2 Vaðlaheiðargöng, >3 Norðfjarðargögn, > 4 Dýrafjarðargöng eða öll þessu fjögur göng saman.
Vona að fleirum finnist þessi saman teggt áhugaverð/gagnleg.
14 comments
Það er kannski einföldun að segja að einungis Seyðfirðingar búi við “hinn enda ganganna”. Þessi göng eru hluti af stærra verkefni. Það á að grafa göng úr Seiðisfirði yfir til Mjóafjarðar og þaðan til Norðfjarðar. Samkvæmt Wikipedia búa 1400 manns í Neskaupstað og 7 í Mjóafirði. Hver íbui “handan ganganna” fengi því einungis rúmar 20 milljónir í sinn hlut miðað við útreikninana þína.
En að öllu gríni slepptu þá er það alveg galið hvað þetta er stór framkvæmd miðað við fólkið sem kemur til með að njóta þeirra. Einhversstaðar heyrði ég að þessi göng, þegar þau verða tilbúin, verði þau á meðal lengstu jarðganga á jörðinni, rúmir 13 kílómetrar.
Ég er enginn sérstakur talsmaður Fjaðraheiðarganga og mér finnst erfitt að réttlæta kostnaðinn en að nota íbúafjölda Seyðisfjarðar sem eitthvert mælitæki er ekki gagnlegt.
Það hefur/ætti að skoða göngin út frá samfélagslegum hagnaði fyrir atvinnusvæðið t.d Egilsstaði og Seyðisfjörð.
Einnig ætla ég að benda á að Norræna kemur í land á Seyðisfirði og til gamans þá kom á árunum 2013-2019 að meðaltali ~17500 ferðamenn til landsins með norrænu í Seyðisfjörð.
En annars minnir þetta innlegg þitt mig á innlegg Gísla Marteins um [snjóflóðavarnir á Norðfirði hérna um árið.](https://hringbraut.frettabladid.is/frettir-pistlar/gisli-marteinn-ergir-landsbyggdafolk/) Ég hafði mikið gaman af því.
Það er nú ekki eins og það sé stór bílaferja sem kemur reglulega til Seyðisfjarðar. Eða þá að nánast hvern einasta vetur virðist vera frétt um það sé allt lokað langtíma til Seyðisfjarðar vegna veðurs.
Eru engin iðnaður í Seyðisfyrði sem gæti nýtt þessi göng? Engin önnur bæjarfélög í nágreninu?
Á bara að fjárfesta í samfélagið ef það er enhver fjáhagslegur gróði sem getur komið að því?
Seyðisfjörður er hluti af samgöngunetinu til og frá landinu og hluti af stærra atvinnusvæði. Göngin eru ekki bara fyrir Seyðfirðinga.
Ég er ekki frá Seyðisfirði en keyrði þangað í sumar, þessi vegur er vægast sagt varhugaverður að sumri til og hvað þá að vetri til. Myndi ekki óska því á neinn að keyra þarna í neyð að vetri til. Gífurlega fallegt en þetta er alveg út í hött.
Èg er þeirrar skoðunar að við eigum ekki að detta í svona reikninga. Það er svo mikil skammtímahugsun. Horfðu næstu 100 ár fram í tímann. Það er nákvæmlega það sem það er.
https://www.humanrights.is/is/mannrettindi-og-island/ymiss-mannrettindi/ferdafrelsi
Hvert er samanlagt fasteignamat allra fasteigna á Seyðisfirði?
Lausnin á þessu vandamáli er einföld; þeir borga sem nota. Ef Seyðfirðingar vilja byggja dýrustu jarðgöng Íslandssögunnar, þá eiga þeir að borga fyrir þau sjálf. Enginn býr tilneyddur á Seyðisfirði og þeir sem hafa valið að búa þar verða bara að súpa seyðið af ákvörðunum sínum.
Ráðherra hefur þegar gefið út að helmingurinn af kostnaðinum við göngin verði fjármagnaður með veggjöldum þeirra sem nota þau. Það er frábært, en ég mun samt sjá eftir 25 milljörðum.
Göng í gegnum öll fjölll og brýr yfir alla Vestfirði takk.
Þetta mun margborga sig, Seyðisfjörður er algjör gullkista menningar á Austurlandi. Ég legg líka til að múr verði reistur í kring um Bakkafjörð, Raufarhöfn og Borgarfjörð eystri til þess að upphefja frekar menningu á Íslandi. Það þarf ekki að gera neitt við Grímsey, nema kannski breyta eynni í fangelsi og stöðva ferjuferðir.
Mætti alveg skoða hvað stjórnvöld í Kanada hafa gert á Nýfundnalandi t.d., þar sem heilu bæjunum hefur verið lokað og fólki gefið húsnæði í nærlyggjandi byggðum með betra aðgengi.