
https://hringbraut.frettabladid.is/frettir-pistlar/willum-thor-slaer-afglaepavaedingu-fikniefna-af-bordinu/
“Willum leggur frekar til að refsing verði afnumin fyrir veikasta hóp samfélagsins en bara í tilteknum tilvikum”
Þannig að útúrdópaður heimilislaus maður í fíkniefna maníu fær að vera óáreittur með smáskammt af hörðum fíkniefnum á sér, en svo eitthver heilbrigður og reykir kannabis til dægrastyttingar heima hjá sér og ónáðar engan handtekinn og dæmdur til að greiða mörg hundruðþúsund í sektir, hvernig meikar þetta sense
6 comments
Snarrótin var með mjög gott take á þetta, Willum er að koma fram með útfærslu sem er augljóslega óframkvæmanleg til þess eins að slá ryki í augu fólks og svæfa þetta mál.
Skil ekki hvernig ráðherrar komast upp með að henda fram svona vangaveltum og pælingum án þess að hafa engin rök á bakvið þau.
Ég elska Ísland.
Þú átt bara að skammast þín. Skammastu þín! Hvenær skammaðistu þín síðast? Manst ekki eftir því? SKAMMASTU ÞÍN
Maður hafði heyrt hressandi sögur af honum Willum sem fótboltaþjálfara. Ég hafði bundið vonir við að hann myndi koma með sömu orku inn á Alþingi.
Í stað þess virðist allt sem hann gerir byggjast á úthugsaðari taktík sem má draga saman í orðatiltækið “Oft er betur heima setið en af stað farið.” Hann virðist alltaf vera spilandi langdregna vörn í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur. Þetta nýjasta útspil er samt fyrir neðan allar hellur.
Við tökum stundum ákveðna hópa út úr sviga þegar það kemur að því að þola refsingu, en þá er oftast horft til geðrofs eða þroskaskerðingar. Ég sé ekki hvernig það sé framkvæmanlegt að ætla að taka þennan afmarkaða hóp út fyrir sviga varðandi þennan afmarkaða refsiflokk.
Ég vona að næsta stríð gagnvart óáþreifanlegum samfélagskvillum verði gagnvart fátækt eða þunglyndi. Þá auðvitað með tilhlíðandi refsingum.
Ég spái því að í (vonandi ekki of fjarlægri) framtíðini verði horft til baka á fíkniefnalöggjöf sem langvarandi mannréttindabrot af hálfu yfirvalda.
Eitt stórt slys.
Spurningin er af hverju einhver heilbrigður er að reykja kannabis til dægrastyttingar heima hjá sér. Þetta er ólöglegt eiturlyf, þannig að andlega heilbrigðið er ekki gefið í því.
Sjálfur myndi ég vilja sjá ÁTVR selja kannabis með hinum ávana og vímuefnunum. Og að heimilislausi maðurinn í fíkniefna maníu geti farið niður á lögreglustöð og fengið skammt þar. Það er sjálfsagt að setja starfshópa til að skoða allar útfærslur.
Það er bara þessi helvítis framsóknarflokkur í hnotskurn. Þeir gera hvað sem er til að þóknast öllum, í staðinn fyrir meirihlutanum – þar af leiðandi þjóna þeir engum. Heimskuleg vinsældar þráhyggja.
Sigurður Ingi er líka að stofna félag til að halda utan um gjaldtöku í vegakerfinu. Rosa fínt.
Hversu langur tíma tekur það annars venjulega eftir að ríkið býr til rikisfelag þar til búið er að einkavæða það?
Hversu lengi getur fucking bjaddni setið á sér áður en hann selur þetta til frænku sinnar?
Framsóknarflokkur sem hefur enga stefnu.
Sjálfstæðisflokkur sem er spilltur.
Vinstri grænir sem eru verstir – að leyfa hinum ruslflokkunum að þrífast, þveröfugt við vilja kjósenda þeirra.
Helvítis fokking fokk.