
Nokkur íslensk fyrirtæki eru enn í viðskiptum við Rússland / fyrirtæki í Rússlandi þrátt fyrir innrásina í Úkraínu sem hefur [kostað líf tug þúsunda og breytt lífi milljónar til hins verra](https://www.bbc.com/news/world-europe-61987945).
Á hinum fræga [Yale fyrirtækjalista](https://som.yale.edu/story/2022/over-1000-companies-have-curtailed-operations-russia-some-remain) sem var nýlega uppfærður sést að Hampiðjan, Knarr Maritime, Naust Marine og Marel sjá bisniss í þessu stríði og vilja halda sínu striki í Rússlandi í það minnsta og helst auka viðskiptin.
Mér sýnist þessi fyrirtæki vera eingöngu í beinum ríkis- og fyrirtækjaviðskiptum. Ég velti því fyrir mér hvort það sé gerlegt að bojkötta þessi fyrirtæki með einhverjum hætti sem almennur neytandi?
3 comments
Naust Marine er með status “Stopped projects in Russia”, þannig að ég ekki viss um að “bisniss í þessu stríði og vilja halda sínu striki í Rússlandi í það minnsta og helst auka viðskiptin” eigi við þar. Marel er sett í sama flokk og Naust Marine á listanum þar sem þeir eru með “Paused new projects”
En til þess að svara spurningunni, þá get ég ekki séð að sé leið fyrir hinn almenna neytanda að hafa áhrif á fyrirtækin. Nema þú viljir t.d. mæta með skilti fyrir utan skrifstofur þeirra.
[Hampiðjan segist vera búin að loka Rússnesku skrifstofunni sinni, loka á alla nýja samninga og hætta öllum útflutningi til Rússlands.](https://hampidjan.is/frettir/frett/hampidjan-og-vidskipti-vid-russland1)
[Tilkynningin frá Marel er frekar loðin, eru að “fylgjast með” stöðunni.](https://marel.com/en/news/statement-on-the-russian-military-invasion-of-ukraine)
Naust og Knarr finn ég ekkert frá um þetta mál.
Sem neytandi getur þú sniðgengið rússneskar vörur á siðferðisgrundvelli en enstaklingsbundar aðgerðir eru ekki að fara gera neitt.
Sérstaklega þar sem Nordstream og annað er en í gangi