Kæra Sam­takanna ’78: Um­mæli Helga séu róg­burður eða smánun og teljist því til hatur­s­orð­ræðu

4 comments
  1. Langar að vita hvað ykkur finnst. Þarna í fréttinni er skjáskot af kæru Samtakanna ’78 á hendur vararíkissaksóknara.

    Þetta sagði hann “um hinsegin fólk sem leitar að alþjóðlegri vernd”:

    >Auðvitað ljúga þeir. Flestir koma í von um meiri pening og betra líf. Hver lýgur sér ekki til bjargar? Þar fyrir utan er einhver skortur á hommum á Íslandi?

    Nú alveg óháð því hversu vitlaus, smekklaus og allt það, þessi ummæli eru: Finnst ykkur að það ætti að vera ólöglegt að segja þetta? Á að henda fólki í fangelsi fyrir að segja þetta?

  2. Ef einstaklingur í valdastöðu hefur sýnt fram á að hann mismuni á fólki sem tilheyrir hópum sem ekki er löglegt að mismuna á t.d. kynþætti, kyni eða kynhneigðar, þá ætti það að fara í gegnum viðeigandi ferli sem myndi fjarlægja hann frá þeirri valdastöðu ef svo satt reynist. Jafnvel ætti sá einstaklingur að vera ákærður ef hann hefur brotið lög með því mismuna á þessu fólki á ólöglegan hátt í sínu starfi.

    Persónulega samt, þá finnst mér ekki þægilegt þegar ég sé samtökin 78 nota réttarkerfið til þess að refsa einhverjum fyrir að hafa óvinsælar, gamaldags eða jafnvel sérstaklega slæmar skoðanir sem ekki á neinn beinan hátt hvetur til ofbeldis eða mismunun á þessum hópum. Myndi þessi maður fara á sakaskrá eða jafnvel fá fangelsisvist fyrir þennan facebook póst ef samtökin 78 mundu ráða? Það er margt að gerast í LGBT+ hreyfingunni í dag sem á eftir að leysa t.d. trans fólk í íþróttum umræðan. Sem bæði meðlimur og stuðningsaðili LGBT+ hreyfingarinnar, þá finnst mér ekki þægilegt að vera óviss um það hvort samtökin 78 vilji gera það refsivert að hafa skoðanir sem stangast á við þeirra.

  3. Þetta hefur sennilega bara átt að vera smá fyndið, ekki endilega hugsað nógu vel áður en að hann skrifar þetta. En samt ég tel án þess að þekkja neitt til þessara manns að þetta hafi verið lélegt grín sem maður í hans stöðu ætti ekki að opinbera en ég tel að meiningin hafi ekki verið að vera með rógburð eða smánun. Engu að síður finnst mér mikilvægt að tryggja tjáningarfrelsi í landinu og fyrir mér telst það ekki vera tjáningarfrelsi nema að það sé alveg óskert. Þannig að persónulega verandi hluti af lgbt þó ég hafi ekki nein sérstök tengsl við samtökin 78 þá tel ég svona frekar gefa af sér neikvæða ímynd ef við förum að takmarka hvað fólk má segja með lögum. Tel alveg nóg að fólk skammist sín fyrir ummæli sín.

  4. Þessi Helgi Magnús vararíkissaksóknari hefur sýnt af sér dólgshegðun og látið falla ósæmileg ummæli oft og ítrekað, hegðun og ummæli sem eru ekki sæmandi manneskju í hans stöðu. Ágæt umfjöllun um það er hægt að hlusta á t.d. hér:

    * [RÚV.is – “Vafasöm hegðun vararíkissaksóknara” (2022-07-27T13:06)](https://www.ruv.is/frett/2022/07/27/vafasom-hegdun-vararikissaksoknara)

    En sko, það að Sigríður Jóhanna Friðjónsdóttir ríkissaksóknari sé ekki löngu búin að víkja Helga Magnúsi úr starfi er eitt dæmi um það að hún sjálf sé ekki starfi sínu vaxin.

    Annað dæmi um ofangreint er þessi valdníðsla hér:

    [RÚV.is – “Ríkissaksóknari staðfestir ákvörðun lögreglu” (2022-07-21T18:26)](https://www.ruv.is/frett/2022/07/21/rikissaksoknari-stadfestir-akvordun-logreglu)

    Sigríður Jóhanna starfandi ríkissaksóknari hefur með þessu staðfest að í lagi sé að brjóta kosningalög. Ríkissaksóknari sem gerir slíkt á ekkert annað skilið en vantraust.

Leave a Reply