Þetta mál gerir mig alveg nett pirraðan. Að það skuli vera einhver verslunarkeðja sem ætlast til þess að vera með einkarétt á nafni heillar þjóðar og reyna koma í veg fyrir að önnur fyrirtæki noti sérnafnið Iceland finnst mér svo mikið fáránlegt og fjarstæðukennt bull að mér er næst að skapi að setja á mig víkingahjálm og taka exi og fara í ránsferð í eh Iceland búð og skilja svo allt eftir í logum (engar áhyggjur samt, er ekki svo langt leiddur í pirringnum).

Eitt er hins vegar víst; ég er aldrei að fara versla við þessa skítabúllu. Stundum finnst mér vanta smá patriot-perraskap í okkur Íslendinga. Vantar smá stolt í okkur fyrir land og þjóð. Þori að fullyrða t.d. að ef eh ætlaði sér að vera með einkarétt á “USA” og banna öðrum að nota það, að þá yrði sú búlla sniðgengin með öllu (og eflaust væri það nú allra vægasta myndin sem það dæmi myndi taka á sig).

Hvað finnst ykkur um þetta? Neita að trúa því að ég sé sá eini sem er að láta þetta fyrirtæki fara í taugarnar á mér…

12 comments
  1. Ég er nú frekar mikill afturhaldsþjóðernisdrullusokkur!!1!1!!! og hefur alltaf fundist persónulega mjög mikið virðingarleysi fólgið í því að eigna sér nafn einhvers ríkis eða þjóðar á þennan hátt. Ekkert af því að ég held að Ísland sé betri en aðrir eða endilega okkar vegna, heldur þætti mér bara afskaplega ósmekklegt ef einhverjir íslendingar opnuðu fyrirtæki sem héti “South-Korea store”, sérstaklega ef vörurnar tengdust svo Suður Kóreu ekki baun.

    Ég myndi alveg styðja lög eða reglur sem taka á þessu á einhvern hátt og styðja það að íslenska ríkið bæði erlend ríki að gera slíkt hið sama, erfitt samt fyrir okkur að biðja aðra um að setja um þetta reglur ef við höfum þær ekki sjálf. Maður horfir á búðir eins og Vietnam Store (market?) sem sérhæfa sig í vörum frá Vietnam og skilur það, eða hvað hét USA super store t.d sem sérhæfði sig í að flytja inn frá bandaríkjunum sem svona eðlilegri notkun á nöfnum landa.

    Þess til viðbótar finnst mér verðið hjá Iceland meiri móðgun en hitt og í raun eina ástæðan fyrir að ég hætti að versla þar, veit ekki hvað gerðist en einn góðan veðurdag varð allt rándýrt í þessarri sjoppu og ég hef ekki sést þar síðan.

  2. Hvernig væri að opna búð sem selur tannréttingatæki og kynlífstæki fyrir plus-sized fólk og nefna það Bretland?

  3. Það er eitt að nota nafn lands á fyrirtækið þitt, en það er allt annað mál að banna íbúum þess lands að nota það.

    Ekki geri ég ráð fyrir því að Tékkland skoðunarstöðinni myndi láta sér detta það í hug að lögsækja fólk fyrir að prenta ,,framleitt í Tékklandi” utan á vöruna sem það er að flytja inn frá Tékklandi.

    Sem er það sem Iceland verslanirnar gerðu. Íslendingar máttu ekki, samkvæmt þeim, prenta “made in Iceland” á útfluttar vörur.

    Algjörlega galin tilætlunarsemi. Ég meina, sure, Iceland er lýsandi nafn á þetta fyrirtæki en fyrr má nú fyrrvera frekjuna í þessu liði.

    ​

    edit: stafsetning er erfið þegar maður skrifar hratt…

  4. Ríkið þegar evrópa slær á puttana af því Ísland trassar alþjóðalög: 😤

    Ríkið við evrópu í þessu máli: 🥺👉👈

  5. Getum við ekki bara endurnefnt landið okkar ‘skítasker’ og látið fánann okkar vera mynd af kokteilsósu

  6. Sammála að Íslendingar mættu hafa meira stollt. Þegar að ég var yngri hataði ég að vera Íslenskur. Núna myndi ég ekki vilja vera neinstaðar annarstaðar frá

  7. Það er náttlega alveg glórulaust að einkafyrirtæki hafi nokkurntíman fengið einkarétt á nafninu á sjálfstæðu ríki, hvað þá nágranaríki. Þetta hefði átt að vera stoppað strax í umsóknarferlinu.

  8. Þú ert ekki einn, þetta er alveg hreint það asnalegasta bull sem ég hef séð á síðustu árum, og þessi ár hafa ekki verið blíð.

Leave a Reply