Ok er að horfa á Mbl myndavélina

Það er byrjuð að koma kvika upp. [https://www.youtube.com/watch?v=GCa4EMcWuoI](https://www.youtube.com/watch?v=GCa4EMcWuoI)

16 comments
  1. Þetta er líklega bara einhver undarleg gaslosun þarna, sem er að lýsa svona upp einhvernveginn.

    [Vísir.is – “Reykurinn í Fagradalsfjalli ekki merki um kviku” (2022-08-02T19:49)](https://www.visir.is/g/20222293069d)

    Langtum líklegra að gjósi nær Keili.

    [Vísir.is – “Allra augu beinast að svæði sem í fyrra var talið líklegast til að gjósa” (2022-08-02T22:50)](https://www.visir.is/g/20222293120d/allra-augu-beinast-ad-svaedi-sem-i-fyrra-var-talid-liklegast-til-ad-gjosa)

  2. Það er annaðhvort þyrla eða fljúgandi furðuhlutur komin á svæðið. Fáum væntanlega fréttir bráðum.

    Edit: Og er ég að sjá rétt? Er einhver mættur á fjórhjóli á svæðið?

  3. Rauðu blossarnir eru farnir að vera fleiri og á víðara svæði. Þetta er klárlega upphaf að gosi.

  4. Þetta virðast svo stefnuvirk ljós. Meira eins og kastari eða ljós á bíl.
    Var lögreglan ekki einmitt send uppeftir til að kanna aðstæður? Gætu verið ljós frá þeim.

  5. Greinilega einhver á labba þarna með ljós fyrir framan reykinn. Hitt er líklega einhver annar fyrir aftan reykinn eða eitthvað farartæki.

  6. Ætlar veðurstofan í alvöru bara að láta nægja að segja : Ekki er hægt að staðsetja þessa ljósbjarma nákvæmlega, enn sem komið er.

    Við erum að horfa á þá! Hvað er þetta !?

  7. Það virðist vera það mikill hiti á svæðinu að það er að kvikna í gróðri þarna er ég að lesa út úr þessu, ef það er ekki komið gos, sem ætti nú að vera tilkynnt úr þessu ef svo væri (a.m.k. leaked). Það er bara voðalega skrýtið að það sé virkilega það heitt að það kvikni í gróðri.

Leave a Reply