
Nú hef ég verslað við þennan stað í áraraðir og oft lent í misgóðum pítsum frá þeim, en það sem mér var selt í kvöld sló mig alveg út af laginu.
Ég pantaði á netinu hjá þeim og gaf þeim góðan hálftíma áður en ég ákvað að mæta að sækja pöntunina. Ég mæti á staðinn og þar kannast enginn við pöntunina frá mér. Allt í fína, ég hef lent í þessu áður og ég er ekkert að kippa mér upp við það. Ég panta bara aftur. Eftir annan hálftíma af bið fæ ég loks pítsurnar og bruna með þær heim án þess að kíkja hvað ástandið er á þeim.
[Þessar brunarústir](https://i.imgur.com/j82ggqY.jpg) voru eitt sinn extra ostur og skinka eins og sjá má á þeim hluta sem ekki varð eldhafinu að bráð.
[Þetta grei](https://i.imgur.com/dlCFK2F.jpg) átti eitt sinn að vera “Cheesy Season” en barst svo til okkar sem illa brend “Cheesus” af óútskýranlegum ástæðum.
Eins og við má búast voru botnarnir af þessum tvem ófreskjum illa brenndir og við enduðum á því að henda meirihlutanum af þeim.
Hef aldrei fengið pítsur frá þeim í þessu ástandi. Ég auðvitað hringdi og spjallaði við þau og á víst inni aðrar í staðinn fyrir þessar en ég veit ekki hvort ég hafi kjarkinn í að panta aftur hjá þeim. Hafa fleiri lent í að fá svona hjá þeim?
4 comments
Man ekki til að pizzurnar hafi veirð illa eldaðar. Hins vegar hef ég tvisvar lent í því að fá heimsent frá þeim og í báðum tilvikum hafði sendillinn að því er virðist vera gengið með kassana eins og skjalatösku undir höndunum. Í stað fallegs hrings fékk ég eitthvað sem líktist þríhyrning, stór hluti áleggsins fast við toppin á pizza kassanum.
Ég fékk inneign hjá þeim í annað skiptið en svo enga í seinna skiptið. Velti fyrir mér hvort þeim hafi þótt grunsamlegt að ég væri að kvarta tvisvar.
Hef ekki keypt pizzu hjá þeim síðan. Ekki meðvituð mótmæli, bara ekki haft áhuga.
Hef ekki úr mörgu að kvarta frá pizzunni (núpalind) þegar ég panta þaðan, fínustu pizzur.
Hef lent í því nýlega nokkrum sinnum að fá rangt meðlæti og brauðstangir með nánast engu kryddi
Verslaði oftast við þá en snarhættur eftir verðhækkanirnar hjá þeim um daginn, voru alltaf aðeins ódýrari en Dominos, en núna mun dýrari.