Hvernig leggst það í icelandann að nú eigi að moka heilu fjalli í burtu og keyra það til Þorlákshafnar og þaðan til Þýskalands til sements framleiðslu?

[Fjallið er í bakgrunni](https://www.visir.is/i/8C1D211C5FF9AF1023857403E599C0FA7E2FF57D0BEAB5DFFEB0D6735231D5A6_713x0.jpg)

13 comments
  1. Ekki nóg með þetta á Íslandi heldur er sementframleiðsla ein sú mest mengandi framleiðsla sem völ er á.

    Sementframleiðsla í heiminum veldur 3% af öllum gróðurhúsalofttegundalosun. Til samanburðar er heildar mengun frá farþegaflugi (alþjóðlegu plús innanlands) 1.5%.

    Að draga sementframleiðslu saman um helming væri eins og að banna öll farþegaflug í heiminum.

    Hvernig getum við verið að taka þátt í þessu?

    Heimild: https://ourworldindata.org/emissions-by-sector

  2. Ömurlega. [Ísland árið 1958](https://imgur.com/a/fNa3Ud2) fór í slag við heimsveldi til að halda fiskinum okkar, svo að [Ísland árið 2022](https://imgur.com/a/i1bMPm2) gæti selt öðrum þjóðríkjum náttúruna sína til að mylja í steypu.

    Ég gæti varla skrifað betri satíru um efnahagskerfin okkar hérna í Vesturheim þótt ég glaður vildi.

  3. Bý á Suðurlandinu og að hleypa þessari umferð á vegina hérna væri hrein geðveiki. Vegakerfið er nú þegar of lítið fyrir umferðina.

  4. Muniði hversu slæmir þjóðvegirnir urðu stuttu eftir að strandflutningar voru lagðir af og trukkaumferð margfaldaðist? Tugtonna þungir trukkar á sjö mínútna fresti næstum allt árið um kring á eftir að slátra öllum vegum á þessu svæði. Mun þetta fyrirtæki borga fyrir skemmdirnar sem það veldur á vegakerfinu?

    Svo ekki sé minnst á umhverfisspjöllin á landinu sem verður grafið upp.

  5. Hvar ætla þeir að fá bæði bílana og ökumenn í þetta?
    Það eru ekki margir til taks hvað þá svona margir

  6. Vegakerfið er helvíti tæpt núþegar ástandslega séð, get ekki séð að þetta eigi eftir að bæta það neitt. Á kannski eftir að kosta mörg hundruð milljónir af skattfé að laga vegina eftir þetta bull. Er ekkert sérstaklega spenntur að niðurgreiða arð hjá eitthverjum landeiganda.

  7. Hef efasemdir um að praktíkin gangi upp og að vegakerfið sé að fara að höndla þetta.

    Og það þarf samt að átta sig á því að það er ekki rétt að það sé verið að fara að taka fjallið burt, þeir eru að fara að taka ákveðin lög af sandinum á reyndar nokkuð stóru svæði.

    En eins og annað þá gildir “ég á ‘etta, má ‘etta” lögmálið. Ríkið fékk sinn séns á forkaupum og hafnaði því.

    Held að þeir séu reyndar aldrei að fara að ná að halda uppi þessum flutningum með þessari tíðni, ekki allt árið allan sólarhringinn. Og svo er spurning um aðstöðuna í Þorlákshöfn.

  8. Það vill ekki neinn á suðurlandi þetta

    Það er verið að fara að mylja þjóðveginn til að skapa störf fyrir örfáa bílastjóra og gróða sem er mokað úr landi

    Það er verið að bæta þungaumferð á veg sem er á þolmörkum núþegar

    Þarna er verið að ganga á sameiginlega innviði samfélagsins til að flytja auðlindir úr landi án þess að skapa störf eða verðmæti ofaná það að spilla víðernum.

  9. Eina sem ég gæti séð gott út úr þessu er að Lestarflokkur Jón Gnarrs verður að veruleika og gæti notað þetta til þess að ýta af stað lestarkerfi á íslandi þegar fólk fatta hverssu galið er að flytja keyrandi.

Leave a Reply