Umboðsmaður barna gagnrýnir takmarkanir á aðgengi að gosstöðvunum

1 comment
  1. Í þessu nýja áliti Umboðsmanns barna má lesa harða gagnrýni á takmarkanir lögreglustjórans á Suðurnesjum á aðgengi barna að gosstöðvunum.

    Hér eru helstu punktarnir fyrir þá sem nenna ekki að lesa. Fyrst almennir punktar um bannið:

    – Foreldrar þurfa að leggja mat á hvort barn sé í stakk búið til að takast á við aðstæður hverju sinni.

    – Ef foreldrar bregðast skyldum sínum getur það kallað á aðkomu yfirvalda.

    – Takmarkandi ráðstafanir má aðeins gera á grundvelli laga og þegar brýna nauðsyn ber til.

    – Það er mikilvægt að jafnræðis sé gætt þannig að börnum sé ekki mismunað, enda eru allir jafnir fyrir lögum.

    Umboðsmaðurinn dregur svo lögmæti bannsins í efa:

    – Lögreglan hefur gefið út að bannið byggi á 23. gr. laga um almannavarnir nr. 82/2008

    – “Af orðanna hljóðan má ráða að um sé að ræða heimild, sem beita megi í undantekningartilvikum, þar sem nauðsynlegt reynist að banna alla umferð eða dvöl á tilteknu svæði, en ekki eingöngu umferð eða dvöl tiltekinna hópa”

    – Ákvörðun um takmörkun á aðgengi barna verður hins vegar að byggja á skýrri lagaheimild

    Og að lokum kemur svo áhugaverður punktur um barnasáttmálann:

    – Íslenska ríkið hefur skuldbundið sig í barnasáttmála SÞ að framkvæma mat áhrifum ákvarðana á börn sem og að veita börnum vettvang til samráðs um ákvarðanir sem snerta þau.

    – Lögreglan á Suðurnesjum gerði það ekki við setningu bannsins (gefið í skyn) og barnaréttarnefnd SÞ gaf að auki út tilmæli í sumar til íslenska ríkisins um að gera þyrfti nauðsynlegar úrbætur á þessu.

Leave a Reply