Þungir dómar fyrir grófar frelsis­sviptingar og líkams­á­rásir – Vísir

3 comments
  1. “Þungir dómar” – Hvílíkt grín.

    >Sindri Freyr hlaut þyngstan dóm eða þriggja ára fangelsisvist, þar af 33 mánuði skilorðsbundið með sömu skilmálum.
    >
    >Otri Grettir var dæmdur í tveggja ára fangelsi en fullnustu 21 mánaðar var frestað til fimm ára, haldi hann almennt skilorð.
    >
    >Aron Bjarni var dæmdur til átján mánaða fangelsisvistar, þar af fimmtán skilorðsbundinna með sömu skilmálum. Hann á að baki fjóra refsidóma..

    “Þungir dómar” fyrir eins hrottalega árás og er lýst í þessari frétt væri einhvað á borð við tíu til fimmtán ár. Fimm ár hlýtur að vera algjört lágmark fyrir svona lagað…

    ​

    >Þeir kýldu hann meðal annars og slógu í andlitið, felldu hann í jörðina þar sem þeir spörkuðu ítrekað í hann uns hann var reistur við og bundinn við stól, fötin skorin utan af honum og sokkum troðið í munn hans og héldu áfram að kýla og slá hann ítrekað ásamt því að slá hann með felgulykli, eða álíka áhaldi, í fætur, slá hann með hnífabrýni, eða álíka áhaldi, í rifbein, maga og háls, slá hann með belti, sparka í kynfæri hans og setja fætur hans í fötu eða kar með ísköldum hreinsivökva og hella sama vökva yfir hann, að því er segir í dómi Héraðsdóms Reykjaness.
    >
    >Þá var Otri Grettir einnig sakfelldur fyrir rán með því að hafa tekið fjármuni út af bankareikningi brotaþola, með því að neyða hann til að gefa upp leyninúmer bankakorts hans, og að hafa stolið bifreið móður hans nytjastuldi.
    >
    >**Frömdu sams konar brot skömmu áður**
    >
    >Þá voru þeir sakfelldir fyrir líkamsárás, frelsissviptingu og ólögmæta nauðung með því að hafa í félagi svipt annan mann frelsi í þrjár klukkustundir og veist að honum með ofbeldi, þar sem þeir meðal annars kýldu hann ítrekað í höfuð og búk, spörkuðu í hann liggjandi, handjárnuðu hann við stól og spörkuðu í kynfæri hans ásamt því að hóta honum frekara ofbeldi uns þeir létu hann lausan. Þá létu þeir manninn fylgjast með því ofbeldi sem lýst er hér að ofan.

  2. Svona vægir dómar eru kanski skýringin á því af hverju móðirin fór þessa leið til að refsa fyrir nauðgunina. Maður skilur a.m.k. vel að fólk vilji taka málin í eigin hendur ef svona vægar refsingar eru normið.

Leave a Reply