Nýnasistaáróður á fánastöng við matvöruverslun í Reykjadal í Þingeyjarsveit í gær

6 comments
  1. Fyrsta flokks aumingjar sem eru að dreifa þessum nýnasistaáróði. Ég tem mér að óska ekki neinum illt, en ég vona svo innilega að það sé alltaf steinn í skónum þeirra.

  2. Ef þið skoðið alla þessa hópa eins og Íslensku þjóðfylkinguna, Frjálshyggjufélagið, rússland- stjórmál og menning á facebook og eflaust margir aðrir hópar. Þá ætti svona viðbjóður ekki að koma á óvart, svo má reikna með að margir utan þessara hópa sýna sig ekki svona opinberlega á facebook, síðan mata þau þetta ofan í börnin sín. Ég held að við eigum töluvert af fávitum sem við ættum ekki að spegla afstöðu samfélagsins okkar út frá.

  3. Mér finnst að við ættum að taka átak og fjarlægja alla þessa ljótu límmiða, hvar sem þeir sjást. Þeir sem límda þessa miða út um allt eiga til að skrásetja það eins á sinni eigin síðu…

    `https://nordurvigi.se/adgerdir/adgerdir-sidustu-vikur-2/`

  4. Ég bý á þessu svæði og keyri alltaf framhjá þessum stað á leiðinni í vinnuna. Þetta er mjög sjokkerandi og leiðinlegt að heyra. Gott hjá Aðalbirni að rífa niður þessa sóun á pappíri.

Leave a Reply