https://www.visir.is/g/20222300560d

10 comments
  1. Sorglegt að heyra. Byssuofbeldi er því miður orðið að stóru vandamál á Íslandi, sérstaklega í ljósi þess hve hratt hlutirnir hafa breyst. Löggjafar, lögreglan og fagaðilar ættu að tala saman um nauðsynlegar aðgerðir, þessa þróun verður að stöðva.

  2. Mæli með því að menn sleppi öllum pælingum um fíkniefni og aðra hluti og sýni samúð gagnvart þessum voðalega atburði

  3. Var ekki með þetta á Bingo spjaldinu fyrir 2022 skot áraás á Blondósi.

    áhuga vert að þetta virðist vera framið í tengslum við atvinnustarfsemi ef marka má fréttir á RÚV.

  4. Hann var þaulvanur skotvopnum, handtekinn í sumar vegna hótana gagnvart heimilisfólki í húsinu þar sem atvikið gerðist og var vistaður á geðdeild um skamman tíma í sumar segir [DV](https://www.dv.is/frettir/2022/8/21/arasarmadurinn-handtekinn-sumar-og-vistadur-geddeild-keppnismadur-skotfimi-sem-hafdi-haft-hotunum/)

    Ég ætla rétt að vona að hann hafi vitað um vopn til að sækja því það væri glæpsamlegt að leyfa manni sem svo augljóslega er ekki í lagi að hafa skotvopn.

  5. Það er hræðilegt að sjá þessa þróun eiga sér stað á litlu friðsælu eyjunni okkar.

    Edit: Áhugavert að þetta sé umdeild skoðun.

  6. * Random skotárás á unga feðga í Hafnarfirði
    * Maður barinn til dauða í Barðavogi
    * Maður skotinn til bana og annar særður á Blönduósi

    Andlega veikt fólk á Íslandi er ekki að vinna sér inn miklar vinsældir þessa dagana. Fólk á eftir að fara að vera virkilega hrætt við andlega veika með þessu áframhaldi.

  7. Ég held það sé betra að segja minna heldur en meira svona stuttu eftir atburðinn. Ég votta samfélaginu á Blönduósi einlæga samúð mína.

    Ég sé þó nokkra hér tala um að nú þurfi að hefta aðgang að skotvopnum. Ég er því ósammála, ég held að þetta sé frekar ákall um átak í geðheilbrigðismálum.

Leave a Reply