
Hópárás á ungan mann á Menningarnótt – „Viðmælendur Vísis tala um algert ófremdarástand og að nú sé svo komið að fólk sem lendi í árásum í miðborginni þakki fyrir að vera ekki stungið“

Hópárás á ungan mann á Menningarnótt – „Viðmælendur Vísis tala um algert ófremdarástand og að nú sé svo komið að fólk sem lendi í árásum í miðborginni þakki fyrir að vera ekki stungið“
12 comments
Stórt hrós á gaurinn sem þorði að stíga inn í án þess að vera hræddur um að vera stunginn. Merkilegt að guttarnir þorðu ekki að ráðast á hann líka og hlupu í burtu eins og litlir kettlingar.
Djöfulsins ógeð er þetta ofbeldi allt saman.
Miðað við ákveðnar Telegram groupur virðist þetta vera eitthvað að aukast að ungir strákar, helst margir á móti einum séu að lenda í slagsmálum.
Man nú samt þegar ég var yngri varð ógurlegt drama í kringum slagsmál sem að voru tekin upp að mig minnir á bakvið háskólabíó þannig að þetta hefur alltaf verið eitthvað í gangi.
Þetta með hnífana ekki að ég vilji hljóma eins og [Parents Music Resource Center](https://en.m.wikipedia.org/wiki/Parents_Music_Resource_Center) en mér líður eins og með auknum vinsældum UK drill tónlistar hafi þetta aukist samhliða því.
Miðað við öll þessi ofbeldisatvik í miðbænum upp á síðkastið held ég að djammdagar mínir séu taldir, eða endi a.m.k fyrir miðnætti.
Ég lenti einmitt í því að vera kýldur upp úr þurru á laugardaginn fyrir viku á Ingólfstorgi. Hann var sem betur fer bara einn sem kýldi, þó það var annar með honum, og svo hlupu þeir báðir í burtu eftir 1 högg sem hitti varla. Ég slapp með bitna kinn og gleraugun í jörðinni nokkra metra í burtu og hristi það af mér með bjór á næsta bar.
Glatað. Minnir á uppeldisárin í Keflavík.
Af hverju eru fjölmiðlar (eins og DV) ekki að birta nöfnin á þessum óbermum? Þegar kynferðisafbrot eða siðferðisbrot eiga sér stað er alltaf tilkynnt í fjölmiðlum hver á hlut sem oft rústar lífum gerenda. Það mætti alveg rústa lífi þeirra sem veittust hér að manninum.
Önnur TikTok trend?
þetta hefur verið að gerast í mörg tuga ára í miðbænum.. tengist alltaf vandræða táningum sem hafa spíralað út í vitleysu.
Verst er að það er aldrei neitt gert, því það kostar erfiði og pening, og það er ekki pólitískt sexý.
Litli bróðir minn er einn af þeim sem voru stungnir. Þrjár stungur. Tvær í læri og ein í bak en slapp heppilega miðað við.
Hann steig inn til að hjálpa vini sínum sem fór verr. Sá strákur fékk gat á lunga og er á spítala.
Ógeðslegir aumingjar og fífl. Það þarf ekki nema eina stungu á vitlausan stað og þú deyrð á stuttum tíma.
Að mínu máti á að lóga svona liði. Það vill enginn nema foreldrar þeirra sjá þetta lið, ef þá það.
Ógeðslegt.
og hvað fær maður fyrir svona? Þrjá mánuði á skilorði og greiða 50 þúsund kall í miskabætur, eftir að dómurinn tefst í kerfinu í sex ár?
Hvers vegna haldiði að þetta sé að gerast? Það fær enginn refsingu á Íslandi fyrir ofbeldi.