Kaupsamningar ekki verið færri síðan í apríl 2015

6 comments
  1. Selst minna, en það sem er á sölu selst hraðar og fyrir meira. Gæti það ekki alveg eins verið vísbending um minna framboð, frekar en minni eftirpsurn?

  2. Við hjónin erum að selja íbúð í kópavogi, byggt 2019 og mjög fín eign ef ég segi sjálf frá. Erum búin að hafa 5 opin hús síðan hún fór á sölu í sumar. Samþykktum tilboð 3m undir ásett en sá aðili náði ekki að selja sína íbúð til að fjármagna svo við settum okkar aftur á sölu, nú á lægra verði. Sama saga, einhverjir áhugasamir en ná ekki að selja sínar eignir og allt stopp….Þannig já, það hefur kólnað verulega síðasta mánuðinn og fasteignasalinn okkar segir þetta langt frá því að vera einsdæmi.

  3. Þetta kemur mér litið á óvart. Ég var að kaupa 250 fermetra hús í Danmörku á uþb 25 milljónir, og var eitthvað að ræða þetta við móður mína sem býr á Íslandi. Ég fann einhverjar fasteignasíður og ég gat ekki betur séð að það eina sem ég gat fengið fyrir svipað verð voru annaðhvort íbúðir i blokkum a Ólafsfirði, eða eins herbergja “íbúð”, örugglega ekki 30 fermetrar, í miðbæ rvk.

    Svo er móðir mín að borga 200+ þúsund a mánuði i leigu fyrir eitthvað drasl í Njarðvík, og leigan hækkar nánast mánaðarlega.

    Skil nú bara ekki hvernig venjulegt fólk á að geta búið a Íslandi.

  4. Verðhækkanir hafa fært flestar íbúðir í verðflokk þar sem að margir fyrstu kaupendur eða kaupendur með miðgildislaun ná ekki að standast greiðslumat.

    Reglur Seðlabankans um greiðslugetu eru að stoppa virkasta hópinn, þ.e.a.s fyrstu kaupendur í að komast inn á markaðinn. Sem er jákvætt að fólk er ekki að kaupa á vangefnu verði og skuldsetja sig, en hins vegar slæmt af því að það er fast inn á geðbiluðum leigumarkaði að borga meira í leigu en það myndi gera af jafnvel dýrri íbúð.

    Þannig að þetta er svolítill bjarnargreiði frá Seðlabankastjóra.

    En já það er eðlilegt að kaupsamningum fækki þegar aðal kaupenda hópinn vantar á markaðinn. Verðbólga er ekki að hjálpa þar sem að lán og afborganir af þeim eru óaðlaðandi.

    Og það skiptir sjálfsagt litlu þegar litið er á heildarmyndina þar sem að það eru afspyrnu fáar eignir til sölu. Hvað þá á viðráðanlegu verði miðað við miðgildislaun.

    Við erum að fara að horfa upp á stöðnun þar sem enginn vill lækka sig en fáir geta keypt. Sem að ég er ekki viss um að sé jákvæð þróun til lengri tíma litið þegar Seðlabankinn fer að átta sig á að þeir mögulega stigu of harkalega á bremsuna og stígur bensínið í botn aftur.

  5. Ekki ljóst að allur fasteignamarkaður hrynur, forvitnilegt að sjá hvað gerist nú á næstu mánuðum…

Leave a Reply