Hvað finnst fólki um nýrri byggingarnar í RKV?

8 comments
  1. Erum við ekki nokkuð að týna til fallegustu gömlu húsin og bera þau saman við ljótustu húsin sem til eru í dag? (svona eins og að bera saman greatest hits með queen á móti nýjustu plötuna með leoncie)

    [Mótdæmi](https://www.google.com/maps/@64.1510151,-21.9467901,3a,75y,211.76h,91.91t/data=!3m6!1e1!3m4!1skR_CABrVrRjYOjDLLo6z-Q!2e0!7i13312!8i6656)

    Þar með sagt þá held ég að þetta muni ekki breytast fyrr en húsasmiðir keppist við að fá fólk í húsin sín frekar en að fólk sé að keppast við að komast í húsaskjól. Þangað til þá verður hvaða hönnun sem skilar mestu húsi fyrir minnsta vesenið í byggingu smíðað og lítið verður um grósku í hönnun. Reynar þá mega nýlegar framfarir í álklæðningu og að bolta svalir við hús til að auka líftíma / minnka viðhald alveg rétt á sér.

  2. Mér finnst þau flest bara fín. Flest af nýju húsunum sem eru valin þarna eru bara frekar hugguleg og flott, þó að höfundur hafi augljóslega reynt að velja ljótustu nýbyggingarnar til að ýta undir málstað sinn.

    Þessi hús myndu samt nánast öll verða töluvert betri ef þau væru ekki öll grá og svört. Það eina sem ég þoli ekki við nýbyggingatískuna sem er í dag er að það er allt grátt og svart – En það er sem betur fer tiltölulega lítið mál að laga það.

    Mér finnst rosalega fyndið að [velja þessi hús](https://i.imgur.com/rNej1uo.png) sem dæmi um einhvern frábærann gamlann arkitektúr. Þessi hús, sérstaklega appelsínugula húsið, er gamla útgáfan af fjöldaframleiddum verktakahúsum. Þetta eru einfaldir kassar sem eru bara brotnir upp með gluggum. Eini munurinn á þessum húsum og nýjum ljótum steinsteypukössum eru hráefnin sem voru notuð.

  3. Var að koma úr ferðalagi um þýskaland og Tékkland eftir að koma heim gleymdi ég hvað RVK er ljót borg meða við þær sem ég var að ferðast í kringum í Evrópu.
    Þetta er mjög sorgleg þróun líka hvað margir eru sama um fallegar byggingar sem standast líka við íslenska veðráttu.

  4. Hver vill í alvörunni gler eða gagnsæa rimla á svalirnar hjá sér?

    Svalirnar eru ekki nýtilegar nema þegar búið er að þræða einhverri hulu milli rimlana.

    Mér finnst svona gangssæar svalir of berskjaldandi. I ain’t the pope skiluru.

  5. Ég er hættur að gera mér ferðir niður í miðbæ Reykjavíkur vegna tíðni stunguárása sem og ljóts arkítektúrs. Líklegast ekki til verri leið til þess að kveðja þennan heim heldur en með kuta í bringunni horfandi upp á þennan neo-brútalisma.

Leave a Reply