
Hér er f[rétt á dv.is](https://www.dv.is/433/2022/8/23/auddi-graeddi-vel-en-gefur-agodann-til-godgerdamala/) um að Auðunn Blöndal hafi gefið ágóðann af fótboltaveðmáli til góðgerðarmála. Veðmálafyrirtækið Coolbet tvöfaldið svo upphæðina.
Hér er [Twitter-innlegg](https://twitter.com/Auddib/status/1561664129634603009) Audda þar sem hann deilir Coolbet-skjáskoti sem sýnir að hann veðjaði 350 evrum á sigur United gegn Liverpool.
Málið er að Auddi, Gillz, Rikki G og fleiri deila reglulega svona skjáskotum og 350 evrur er afar kunnugleg upphæð. Þetta er engin tilviljun. Coolbet leggur inn á spilareikninga þessara aðila og í staðinn pósta þeir skjáskotum af veðmálum sínum.
Sömu aðilar eru styrkir vandlega af Coolbet gegnum podcastið Þungavigtin. Leiðin sem þar er farin er að styrktaraðili þáttarins er ekki Coolbet heldur fatalínan “Coolbet Merch”. Hér má sjá [heimasíðu](https://coolbetmerch.com/) Coolbet Merch þar sem hettupeysur og derhúfur eru í boði. Ég hef hins vegar reglulega skoðað þessa síðu undanfarna mánuði og hver einasta vara er alltaf uppseld. Ég held að fleiri podcöst séu styrkt af Coolbet á þennan hátt.
Þetta fyrirkomulag hefur átt sér stað í ansi langan tíma. Er öllum nákvæmlega sama eða er þetta einfaldlega allt saman eftir laganna bókstaf?
3 comments
Ég er pínu áhyggjufullur af því að maður sér alltaf meira og meira af ungu fólki sem er viðkvæmt fyrir áhættuspilum detta í þessa gildru. Þetta er eitthvað sem ætti pottþétt að taka á.
Ég þekki annars nokkra einhverfa aðila með þroskahamlanir sem hafa dottið inn á þetta kjaftæði, þá vegna þess að streamerar sem þau horfa á spila þetta kjaftæði. Þau skilja ekki að þau eru að brenna peningunum sínum í þetta, þau skilja ekki að leikirnir sem þau eru að spila séu bókstaflega fixaðir.
>Ég hef hins vegar reglulega skoðað þessa síðu undanfarna mánuði og hver einasta bara er alltaf uppseld.
getcalicopants.com
Coolbet sponsa hvern sem er, þannig þetta kemur mér ekki á óvart 😕