Getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig á því stendur að í þessu guðs blessaða samfélagi sé notuð lögreglusveit vopnuð vélbyssum og öðrum hertólum til þess að handtaka einstakling sem sagður vera í maníu og stendur til að svipta sjáfræði.

Ég held það sé eitthvað mikið orðið að hjá okkur og það er ekki manían hans Hrafns.

[https://www.mbl.is/frettir/innlent/2022/08/27/stefnir\_islenska\_rikinu\_fyrir\_rumlega\_120\_milljonir/](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2022/08/27/stefnir_islenska_rikinu_fyrir_rumlega_120_milljonir/)

3 comments
  1. [https://www.frettabladid.is/frettir/hrafn-berst-samtimis-vid-banvaent-aexli-og-islenska-rikid/](https://www.frettabladid.is/frettir/hrafn-berst-samtimis-vid-banvaent-aexli-og-islenska-rikid/)

    Grein Fréttablaðsins er mun ítarlegri og já, ég vil líka útskýringar á þessu, þetta hljómar eins og að lögreglan sé bæði að mæta þungvopnuð þangað sem það ætti að vera alveg óþarfi, og ýmsar ásakanir um fljótfærni og svo vanrækslu algerra grunnatriða eins og að vera greindur an viðtals, og aldrei sagt af hverju hann væri þarna læstur inni, eru alvarlegar.

  2. Já, ég get útskýrt það:

    >Vísað er til lögregluskýrslu í stefnunni þar sem fram kemur að Hrafn hafi verið í miklu ójafnvægi, haldinn mikilmennskubrjálæði og haft í hótunum. Hann hafi verið sveiflandi hnífum, verið mjög ógnandi við fólk sem hann umgekkst, sveiflað stórum skiptilykli og haft í líflátshótunum við systkini sín og hótað ráðamönnum þjóðarinnar.

    [https://www.visir.is/g/20222303236d/hrafn-krefst-124-milljona-vegna-frelsis-sviptingar-og-seinnar-krabba-meins-greiningar](https://www.visir.is/g/20222303236d/hrafn-krefst-124-milljona-vegna-frelsis-sviptingar-og-seinnar-krabba-meins-greiningar)

Leave a Reply