Þegar það snjóaði á veturna 🙂

7 comments
  1. Man eftir og sakna þess innilega þegar snjóaði svoleiðis að bærinn lokaðist.

    Við höfum ekki fengið almennilegan snjó vill ég meina, síðan sirka 2003, 2004 kannski.

    Svo eitt skipti 2014 held ég að það hafi verið.

  2. Man mjög vel eftir vetrunum 1992-1996.

    Þetta voru örugglega með snjóþyngstu árunum sem að ég man eftir hér á norðulandi.

    Þurftum að grafa okkur út og moka frá gluggum til að geta opnað þá.

  3. Man eftir að hafa heyrt um þennan vetur heima, var passlega hinum megin á hnettinum þennan vetur, en er vel kunnugur snjóþungum vertrum á Ólafsfirði.

  4. Þegar ég var krakki á Kópaskeri á tíunda áratugnum snjóaði svoleiðis á veturna að við gátum klifrað upp á þak og stokkið ofan í snjóskaflana, þar sem þeir voru hvort eð er álíka háir og húsþökin. Í dag vinn ég utandyra og krosslegg fingurna allra vetra í von um að það snjói ekki í líkingu við það.

  5. Sko ég man þegar ég var ungur að snjórinn náði manni upp að hnjám.
    Var rosalega mikill snjór þá eða var ég bara lítill?

  6. Það er bara rétt um ár síðan það kom skafl heima hjá mér sem náði upp að þaki. Sýnist að það snjói oft ágætlega á flestum stöðum landsins nema suð-vesturhorninu. Auðvitað ekkert í líkingu við ’95, sem er hægt að taka út fyrir sviga, en trúðu mér, við fáum ennþá slatta af snjó!

Leave a Reply