https://www.visir.is/g/20212191242d/vilja-ad-heil-brigdis-rad-herra-skipi-sott-varna-laekni

10 comments
  1. Hvernig væri ef fagmanneskja eins og Landlæknir myndi halda áfram að skipa í þetta embætti í stað pólitísks skipaðs ráðherra. Ég myndi ekki treysta pólitískt skipuðum sóttvarnarlækni til að sinna starfi sínu af sama hlutleysi þegar Sjálfstæðisfólk vil t.d. sjá slakari aðgerðir.

  2. Mér finnst þetta eiginlega verra:

    >Þá er lagt til að fjölskipuð farsóttarnefnd taki að hluta við tillögugerð um opinberar sóttvarnaráðstafanir sem er á hendi sóttvarnalæknis í dag.

    Já einmitt, látum sóttvarnaraðgerðir alfarið í hendurnar á stjórnmálamönnum. Það hefur verið svo leiðinlegt að einhver læknir sé eitthvað að vilja upp á dekk.

  3. Glórulaust. Langbest þetta sé ópólitísk fagmenneskja. Skil heldur ekki pointið, Alþingi hefur alltaf ráðið hvað þeir gera við tillögur sóttvarnarlæknis og verið raunverulega valdið í sóttvarnaraðgerðum svo afhverju salsa undir sig meira vald þegar þau hafa þegar allt raunverulega valdið?

  4. Eiginlega trúi ekki því sem ég er að lesa.

    Á hvaða forsendum þarf að breyta þessu fyrirkomulagi?

    Er eitthvað bitist um það hvort núverandi sóttvarnalæknir hafi verið að standa sig vel eða?

    Mér þykir hans störf í þessum kófvid-ólgusjó hafa einmitt verið til mikillar fyrirmyndar. Og tel að það að við höfum haft eins hæfan mann og hann er í þessu starfi sé einmitt núverandi fagfólks skipunarferlum að þakka.

  5. Þetta er ein hræðislegasta hugmynd sem ég hef heyrt. Sjöllunum finnst raunverulega að skoðanir þeirra eigi að vera metnar jafn mikils, eða jafnvel meira, en vísindalegar staðreyndir, svo nú á bara að losa sig við vísindamanninn.

  6. Sjálfstæðismenn vilja fá strengjabrúðu í þetta hlutverk sem stendur ekki í veg fyrir hagsmunum atvinnulífsins.

Leave a Reply