Er ekki alltaf á sama bandi og Samfylkingin en ég styð þessa hugmynd.
Vonandi kemst frumvarpið í gegn og Dagur B nýtir sér lagaheimildina og innleiðir þetta í Reykjavík.
Bíddu lækkuðu þeir ekki hraðan í borginni til að minnka svifryk? Eins gott að þeir lagi það nú og hvað ætli verði um fólk í atvinnutækjum eða þeir sem fara oft útá land?
Verður sem betur fer ekki samþykkt.
Bara kaupa sér ónegld vetrardekk, málið leyst, og nei það er ekki það sama og heilsársdekk.
Ég styð þetta, aðallega afþví að þetta mun pirra alla búmerana sem eru að reyna að fá lögbann á rafskútuna mína.
Mín upplifun er sú að naglar veita rosalega falskt öryggi. Góð snjódekk, box af sandi eða salti og keðja(í verstu tilvikum úti á landi) í skottinu og keyra hægar og þrífa dekkin einstaka sinnum veita mikið betri og mikið meira öryggi heldur en 2mm naglar veita nokkurn tíman.
Hvernig væri þá líka að hreinsa göturnar aðeins oftar?
Það er gjörsamlega sturlað að maður þurfi að halda sig innandyra nokkra daga á ári vegna svifriksmengunar, sem eru oft fallegustu vetrardagarnir í þokkabót. Nagladekk eru óþörf 99% af árinu í innanbæjarakstri, samt er allt of há prósenta af innanbæjarfarartækjum á negldum dekkjum frá hausti til vors. Þau örfáu skipti sem negld vetrardekk eru gagnleg umfram góð vetrardekk er hægt að haga akstrinum eftir aðstæðum, m.ö.o. keyra hægar. Þar að auki eru negld dekk miklu háværari.
Það eru 60 dauðsföll á ári eyrnamerkt svifryki, samt nennir fólk ekki að sleppa nagladekkjunum af því það þarf kannski mögulega að keyra hægar 3 daga á ári. Að mínu mati er þetta lýsandi fyrir sjúkt samband sem íslendingar eiga í við umferð, mengun og einkabílinn. Önnur dæmi er hvernig er talað um dauðsföll á gangandi vegfarendum sem verða fyrir bíl vs þeim sem slasast við reiðhjólar eða á rafskútum. Átökin um göngugötur sem sumir vilja meina að séu ennþá opnar fyrir umferð og keyra þær þrátt fyrir lokanir. “Bílastæðavandinn” í miðborginni þar sem ekki er hægt að keyra inn í búðirnar. osfv. Ég er með þessu ekki að segja að allir bílstjórar séu svona, en heilt yfir er þetta ríkjandi menning sem brýst fram í yfirgangi og tilætlunarsemi. Fólk virðist svoldið gleyma því að það býr fólk við verstu mengunarpúnktana og það eru ekki allir sitjandi í rúmlega tonna verndarhjúp með síaðri loftræstingu.
Það blasir við að það þarf að minnka svifryksmengun og fækkun nagladekkja innanbæjar er stór partur af því sem er auðleysanlegur. Lækkun hámarkshraða, bættar almenningssamgöngur og þrif/rykbinding eru svo hlutir sem þarf líka að takast á við. Allt góðir og gildir hlutir til að bæta lífsgæði borgarbúa. Það að fækka nagladekkjum með gjaldi eða bönnum, er aðgerð sem skilar sem mestu með lámarkskostnaði og fyrirhöfn.
Ég ek á Green Dimond dekkjum á veturnar.
Ekkert síðri en negld þegar maður kann að aka í hálku og snjó.
Langar að kasta einni sprengju hérna, ég starfaði í smá tíma sem aðstoðarmaður loftgæðaverkfræðings og las þá helling um myglur og svifryk og átti einnig umræður við hann um áhrif svifryks á fólk.
Þetta var þegar myglu umræðan var mest hér á landi og þegar við vorum að bera saman rannsóknir lá það augljóslega fyrir að svifryk er miklu hættulegra en mygla í byggingum.
Það hefur ekki farið mikið fjármagn í rannsóknir á svifryki og áhrif þess á heilsu fólks en það verður gert þegar það þóknast ákveðnum aðilum og hægt er að hagnast á rannsóknunum.
Ef fólk vissi hvað svifryk er hættulegt heilsu fólks þá væru allir með grímur á sér þegar þeir færu úr húsi og mannvirki væru lokuð með filterað loftræstikerfum.
10 comments